Vís

Góður sigur á Aftureldingu á útivelli

27.10.2011 steingrimur
Næst síðasti leikur FH í 1. umferð N1-deildar karla fór fram í kvöld er við mættum Aftureldingu á útivelli.

Okkar menn byrjuðu leikinn mun betur og staðan eftir átta mínútna leik var 6-1. Vörnin var frábær og þá, eins og svo oft var markvarslan góð hjá Daníel Andréssyni sem átti frábæran leik í kvöld. Afturelding tók leikhlé í þessari stöðu og náði aðeins að rétta úr kútnum og staðan var 17-12 í hálfleik. Ólafur Gústafsson var mjög góður í fyrrihálfleiknum þar sem hann skoraði 5 mörk af 6 mörkum í leiknum, en hann var tekinn úr umferð í síðari hálfleiknum og þá steig Örn Ingi Bjarkason upp, sem hefur verið veikur í vikunni og skoraði 7 af sínum 9 mörkum í leiknum. Daníel Andrésson átti eins og fyrr segir góðan leik en hann varði 21 skot og var með 45 % markvörslu. Afturelding gafst aldrei upp og náði að minnka muninn í tvö mörk í seinni hálfleiknum en okkar menn hleyptu þeim inn í leikinn með ótímabærum skotum og mistökum. Leikmönnum fannst sigurinn þó ekki í hættu eins og þeir sega í viðtölum eftir leik við fjölmiðla.

Mörk FH í kvöld: Örn Ingi Bjarkason 9 Ólafur Gústafsson 6,Ari Magnús Þorgeirsson 4, Andri Berg Haraldsson 4, Atli Rúnar Steinþórsson 2,Baldvin Þorsteinsson 2/2 Hjalti Þór Pálmason 1, Þorkell Magnússon 1.

Næsti leikur er gegn Haukum í Kaplakrika 13. nóvember, meira um þann leik síðar.

Umfallanir frá fjölmiðlum sem og viðtöl:
http://www.sport.is/sportvarp/2011/10/27/sportvarp-einar-andri-einarsson-fh-9/
http://www.sport.is/handbolti/2011/10/27/n1-deild-karla-afturelding-fh/
mbl.is/sport/handbolti/2011/10/27/taept_hja_fh_gegn_aftureldingu/
http://mbl.is/sport/handbolti/2011/10/27/daniel_freyr_stodum_af_okkur_erfida_kaflann/
http://visir.is/umfjollun-og-vidtol--afturelding---fh-26-29/article/2011111029047
http://visir.is/kristjan-arason--anaegdur-med-stoduna-eftir-sex-umferdir/article/2011111029005

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?