Vís

Glæsilegur 4 - 1 sigur FH á Breiðabliki

10.5.2011 Biggi
Bikarmeistarar FH unnu glæsilegan 4 -1 sigur á Breiðabliki þann 8.maí síðastliðin. Leikurinn var vel spilaður af FH liðinu og var sigurinn aldrei í hættu. FH liðið virkaði þétt og tilbúið í leikinn frá fyrstu mínútu. Björn Daníel skoraði fyrsta mark FH á 11. mín eftir glæsilega hornspyrnu frá Viktori Erni, glæsilegt skallamark. Breiðablik jafnaði leikinn á 20. mín þegar Haukur Baldvinsson slapp í gegnum vörn FH. Annað mark FH skoraði Pétur Viðarsson á 62. mínútu einnig eftir hornspyrnu frá Viktori. Bæði Viktor og Pétur áttu frábæran dag og hafa byrjað virkilega vel í sumar. Þriðja mark FH skoraði Atli Viðar á 71. mínútu, eftir að hafa haldið boltanum á lofti þrisvar sinnum fyrir utan teiginn hamrað hann svo tuðrunni í markið, Sigmar markvörður Breiðabliks sem átti annars afbragðs leik átti ekki roð í þetta skot Atla. Fjórða og síðasta mark FH skoraði Hólmar Örn Rúnarsson, hann hamraði boltanum upp í nærhornið af stuttu færi. Þetta er fyrsta mark hans fyrir FH og gaman að sjá hann stimpla sig vel inn í liðið, bæði innan og utan vallar.

Næsti leikur FH er útileikur á móti Keflavík þann 11.maí. Leikurinn byrjar kl 19:15 og hvetjum við alla til að mæta á völlinn og styðja FH-liðið.

Áfram FH

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?