|
Það ætti ekki að hafa farið fram hjá neinum að getraunastarf FH hefur verið endurvakið í Kaplakrika. Alla laugardaga á milli klukkan 11 og 14 er opið í kaplakaffi (gamla sjónarhóli) og eru allir hvattir til að mæta, taka þátt og hitta félagana.
Einnig hvetjum við alla til að taka frá föstudagskvöldið 3. febrúar, en þá verður getraunasamkvæmi í Sjónarhóli þar sem stefnt verður saman þjálfurum og leikmönnum FH í spurningakeppni þar sem sjálfur Hörður Magnússon (FH legend) verður spyrill. Veitingar verða í boði á mjög vægu verði.
Núna um helgina fer af stað áskorendakeppni sem spennandi verður að fylgjast með. Hér að neðan er spá fyrstu þátttakenda:
Þátttakendur eru Ingvar Viktorsson sem skorar á Bergþór Jónsson, Héðinn Ólafsson sem skorar Árna Rúnar Árnason, Úlfar Daníelsson sem skorar á Leif Garðarsson, Steinar Stephensen sem skorar á Ingvar G. Jónsson og Þórarinn Þórarinsson sem skorar á Árna Bjórn Ómarsson.
IV BJ HÓ ÁÁ ÚD LG SS IJ ÞÞ ÁÓ
Liverp - Stoke 1 1 1 12 1 1 1X 1 1 1X
A Villa - Everton 1 X2 X2 12 1X 12 12 X 1X 2
Blackb - Fulham X2 X2 X2 2 X2 1 12 1X X2 1X
Chelsea - Sunderl 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1
Man Utd - Bolton 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1
Tottenh - Wolves 1 1 1 1 1X 1 1 1 1 1
WBA - Norwich 1X X 1X 1 1 12 12 12 1 X2
Cr Palace - Leeds X2 X2 X2 12 1X X2 2 1 12 1X
Ipswich - Blackp 1 X 1 X X2 2 1 12 1 12
Middlesbr - Burnley 1X X2 1 1 1 1X 1 1 1 1
Millwall - Birmingh X2 X2 2 12 X2 2 2 X2 1X 12
N Forrest - South 2 X2 X2 X2 2 12 12 1X 12 2
Portsm - W Ham X2 2 X2 12 2 X2 X2 X2 X2 2
|