Vís

Getraunakvöld FH 10. febrúar

2.2.2012 Biggi

Getraunastarf FH hefur fengið nýtt tölvupóstfang 1x2@fh.is .  Þannig geta þeir sem þegar hafa tippað hjá okkur og eru með kreditkortin á skrá hjá okkur, sent okkur tölvupóst með seðlunum, ef þeir ekki komast á laugardegi.  Við munum jafnt sem áður vera með opið í krikanum á laugardögum á milli 11 og 14 og hvetjum við sem flesta til að láta sjá sig.  Þeir sem ekki eru með kreditkortin á skrá hjá okkur og þeir sem vilja nota aðrar greiðsluleiðir, eru hvattir til að koma við hjá okkur á laugardögum.

Föstudagskvöldið 10. febrúar verður mikið um að vera hjá okkur í krikanum þegar lið þjálfara mætir liði leikmanna í spurningarkeppni aldarinnar.  Endilega takið kvöldið frá, en nánari upplýsingar um dagskrá verður birt fljótlega.  Upphaflega stóð til að vera með þetta kvöld núna 3. febrúar, en því var frestað um viku vegna þess að meistaraflokkur er að spila á laugardag, en á frí um næstu helgi.


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?