Fréttir af liðinni helgi: 5. flokkur kvenna
7.2.2012
Steingrímur Gústafsson
5. flokkur kvenna eldra ár:

Stelpurnar á eldra ári í 5. flokki kepptu kepptu á Íslandsmótinu á laugardaginn seinasta í Frostaskjóli.
Þær mættu heldur betur klárar í slaginn og unnu alla sína leiki.
Þær
mættu liði Gróttu, ÍR og Hauka. Okkar stelpur tóku þessa leiki frekar
létt og unnu þá alla með góðum tölum. Seinasti leikurinn var svo við
Stjörnuna en þær höfðu líka unnið alla sína leiki. Þessi leikur var því
úrslitaleikur upp á hvort liðið færi upp um deild. Fyrri partur
leiksins var frekar dramatískur og vorum við einu marki undir í
fyrrihálfleik. Stelpurnar voru sammála um að gefa sig alla í restina af
leiknum og gjörsamlega settu í lás í vörn og markvörslu.
FH stelpurnar spiluðu sig því upp um deild og verða í 2. deild á næstu móti og voru félaginu okkar til sóma.
Umfjöllun um eldra á 5. flokks kvenna annaðist þjálfari flokksins, Hafdís Kristínardóttir.