Frábær FH-sigur í Belgíu
9.10.2011
steingrimur
FH mætti Initia Hasselt í 2. umferð EHF-keppni karla í Belgíu í dag.
Leikurinn var gríðarlega kaflaskiptur og tvisvar sinnum í leiknum
virtust okkar menn vera búnir að knýja fram sigur. Lokamínútur leiksins
voru æsispennandi en strákarnir náðu að sigra með einu marki, 29-28.
Seinni leikurinn fer fram eftir viku,
sunnudaginn 16. október í Kaplakrika.
Initia Hasselt – FH 28-29 (12-18).
Leikurinn var jafn framan af en FH-ingar voru þó ávallt skrefi á
undan Belgunum. Staðan eftir 25. mínútna leik var 16-10 fyrir FH og
18-12 í hálfleik. Staðan leit vel út fyrir FH-inga í hálfleik en
Belgarnir spíttu í í seinni hálfleik. Því eftir tæplega 20. mínútna
leik í
síðari hálfleik var staðan 20-20 og allt með Belgunum sem höfðu skorað
átta mörk gegn tveimur frá FH. FH-ingar spíttu hins vegar í og náðu
góðum kafla og komust í nokkuð vænlega stöðu á 48. mínútu leiksins,
25-21. Belgarnar voru þó ekki á því að gefast upp og minnkuðu muninn í
eitt mark 25-24 þegar tíu mínútur lifðu eftir leiks. Síðustu mínútur
leiksins voru æsi
spennandi og er þrjár mínútur lifðu eftir leiks var staðan 29-27 fyrir
FH, sem náði að knýja fram sigur með mikilli baráttu, 29-28.
Lítið var hægt að fylgjast með markaskorurum á heimasíðunni hjá
Belgunum en þeir uppfærðu þó stöðuna í leiknum sem er flott hjá þeim.
Þeir sögðu þó frá því að Ólafur Gústafsson hefði fengið rautt spjald í
leiknum um miðbik síðari hálfleiks.
Næsti leikur hjá strákunum er 13. október á útivelli gegn HK klukkan
19:30. Svo næst gegn Initia Hasselt í Kaplakrika sunnudaginn, 16.
október og að lokum gegn Gróttu 20. október á heimavelli klukkan 19:30.
Svo kemur sjö daga frí hjá strákunum áður en þeir mæta Aftureldingu 27,
október. Það er því ljóst að mikið álag verður á strákunum sem koma til
með að leika 3 leiki á sjö dögum!!!