Þorgerður og Lúlli á grillinu í kvöld!

11.3.2010 Heiðar Arnarson
Eins og fram hefur komið er stórleikur í handboltanum í kvöld þegar litli bróðir kemur í heimsókn í Krikann. Öllu verður tjaldað til.

    

Dagskrá:
18:30 Húsið opnar
 
18:45 Samfylkingarmennirnir Lúðvík Geirsson bæjarstjóri og Ingvar Viktorsson fyrrverandi bæjarstjóri etja kappi með grillspaðann gegn Sjálfstæðiskonunum, þingmanninum Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og Rósu Guðbjartsdóttur bæjarfulltrúa í Hafnarfirði. Hvor flokkurinn er færari í grill - listinni?
 
Bónus skotið verður að vanda í hálfleik - inneign í verðlaun.
 
Timeout leikur í boði Vegamóta
 
19:25 - Ljósashow
 
Sjá umfjöllun hér á  www.fh.is - Spekingar spjalla, þeir Kristján Ara, Valtýr Björn og Henry Birgir.



Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH