Vís

Flottur sigur hjá strákunum á Val

6.10.2011 steingrimur
Sport.is:

FH tók á móti Val í leik tveggja stórvelda í íslenskum handbolta. Bæði lið unnu í síðustu umferð og voru á góðu skriði. Það voru heimamenn í FH sem lögðu Valsmenn af velli með tveimur mörkum, 29-27. Það var góður kafli rúmum tíu mínútum fyrir leikslok sem skóp sigurinn, FH náði þá mest sex marka forskoti.

FH 29 – 27 Valur
(12-13)

Í fyrri hálfleik var jafnt á öllum tölum. Markmenn beggja voru að verja vel, en varnir liðanna voru mjög fastar fyrir sem skýrði lágt markaskor. Valsmenn náðu tveggja marka forustu þegar fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleik þegar Hlynur Morthens varði þrjú skot FH í röð.  FH svaraði strax með marki og því var staðan sem fyrr jöfn.  Staðan var 13-12 fyrir Val í hálfleik og það var ekki mögulegt að spá fyrir um þróun seinni hálfleiks þar sem liðin nánast skiptust á að skora. Skyldi annað liðið ná þriggja til fjögurra marka forustu í seinni hálfleik gæti það nægt til sigurs.

Fyrstu mínútur seinni hálfleiks einkenndust af sömu spennunni og í fyrri hálfleik. FH missti tvo menn útaf með stuttu millibili en tókst að halda næstu tveimur mínútum jöfnum þökk sé klaufaskap Vals.  Þegar seinni hálfleikur var rétt rúmlega hálfnaður komu þrjú mörk frá FH í röð og staðan orðin 23-20, sóknarleikur Vals var afar stirrður á þessum tíma á meðan  Ragnar Jóhannsson og Hjalti Pálmason skoruðu góð mörk fyrir FH. Valsmenn tóku í kjölfarið leikhlé. FH liðið hélt áfram forskotinu og bætti bara í, náði mest sex marka forskoti, 28-22. Vörn Vals var afar slök á þessum tíma og það virtist sem leikmenn liðsins misstu alveg hausinn. Síðustu þrjár mínútur leiksins voru þó spennandi, Valsmenn náði muninum niður í tvö mörk en hefðu þurft tvær mínútur í viðbót til að fá eitthvað útúr leiknum.  Heimamenn unnu góðan tveggja marka sigur. Valsmenn þurfa meira frá fleiri leikmönnum til að vinna svona spennuleiki gegn toppliðunum. Hjá FH voru Andri Berg, Ólafur Gústafsson og Ragnar Jóhannsson bestir. Ragnar kom sér í góð færi og þá voru Andri og Ólafur traustir í markaskorun. Vörn FH var sterk, sérstaklega í seinni hálfleik.
Valsmenn sakna Valdimars Þórssonar mikið, en hann er ekki heill heilsu og er aðeins hálfur maður á velli. Hlynur Morthens er ávallt traustur í markinu en það þurfa fleiri en Sturla og Anton Rúnarsson að stíga upp. Menn eins og Finnur Stefánsson og Magnús Einarsson þurfa að skila fleiri mörkum til að Valsmenn verði baráttu um sæti í úrslitakeppninni í vetur en þangað stefna Hlíðarendapiltar ávallt.

Mörk FH: Ragnar Jóhannsson 7, Atli Rúnar Steinþórsson 5, Örn Ingi Bjarkarson 4, Andri Berg Haraldsson 4, Hjalti Pálmason 3, Ólafur Gústavsson 3, Baldvin Þorsteinsson 2, Halldór Guðjósson 1.
Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 12, Sigurður Arnarson 5.

Næsti leikur strákanna er í Belgíu 9 október, sunnudaginn gegn Inita Hasselt í 2. umferð EHF bikarsins.



Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?