Vís

Flottur sigur á HK

9.12.2011 Steingrímur Gústafsson
FH hafði í kvöld betur gegn HK, 25-23, í N1-deild karla í handknattleik og hristu þar af sér slenið sem einkennt hefur liðið og forðað því frá sigri í þremur síðustu leikjum. HK hafði forystu í hálfleik, 13-12, en úrslitin réðust í raun á lokasprettinum, þar sem Daníel Freyr Andrésson, markvörður FH, lagði þung lóð á vogarskálarnar. FH 25-23 HK (12-13) Fyrri hálfleikurinn í leik FH og HK í kvöld var fyrir margra hluta sakir afar furðulegur og fer líklega í sögubækur sem hálfleikur mistaka og tæknifleira. Sveiflurnar á upphafsmínútunum skemmdu heldur ekki fyrir; HK-ingar skoruðu fjögur fyrstu mörkin og gerðu nánast allt rétt á meðan FH-ingum voru mislagðar hendur og lentu í hinu mesta basli með að stilla upp í sókn. Þeir jöfnuðu sig hins vegar á öskotsstundu og jöfnuðu reyndar metin líka, 4-4, og eftir það var leikurinn í járnum. FH og HK eru ljómandi góð sóknarlið og fyrirfram hefði mátt gera ráð fyrir taumlausri markaskorun og ógurlegum hraða. Hraðinn var reyndar mikill, aðeins of mikill m.a.s. á köflum, og mönnum var ansi tamt að kasta boltanum út í buskann frekar en að nýta hann til góðra verka. Varnarleikur beggja var sæmilega stöndugur og markvarslan nokkurn veginn á pari. Þegar flautað var til hálfleiks var staðan 13-12 fyrir gestina úr Kópavogi og útlit fyrir jafnan og spennandi síðari hálfleik. Það gekk allt eftir, baráttan og barningurinn voru svo sannarlega til staðar, varnarleikur beggja varð þéttari og tæknifeilum fækkaði til muna. Eftir jaml, japl og fuður sigu FH-ingar framúr tiltölulega snemma í hálfleiknum, en HK-ingar svöruðu að bragði og höfðu frumkvæðið fram undir hálfleikinn miðjan. Þá kom annar ágætur heimasprettur og lokakafla leiksins var allt í járnum. Ólafur Bjarki Ragnarsson fór fyrir vaskri sveit Kópavogsliðsins og Atli Ævar Ingólfsson gerði vel, en sterkir póstar eins og Bjarki Már Elísson og Ólafur Víðir Ólafsson höfðu tiltölulega hægt um sig. Hinum megin var Örn Ingi Bjarkason öflugur, reyndar sé eini sem virtist geta skorað á upphafskaflanum, og Hjalti Pálmason lét að sér kveða. Ólafur stórskytta Gústafsson og Baldvin Þorsteinsson voru rólegir í tíðinni, Ólafur skoraði t.a.m. ekki fyrr en tæpum tíu mínútum fyrir leikslok. Þegar tíu mínútur voru til leiksloka var staðan jöfn, 20-20, og hvorugt liðanna virtist líklegt til að gefa eftir. FH-ingar höfðu frumkvæðið, Daníel Freyr stóð keikur á milli stanganna og varði vel, og fimm mínútum fyrir leikslok höfðu heimamenn tveggja marka forystu, 23-21 og þetta bil náðu HK-ingar ekki að brúa. FH fagnaði sigri í jöfnum og spennandi leik, 25-23, og tókst þar með að skrölta yfir þennan ágæta þröskuld sem liðinu hefur reynst illkleifur í síðustu leikjum. Mörk FH: Örn Ingi Bjarkason 6, Þorkell Magnússon 5(4 víti), Hjalti Þór Pálmason 4, Atli Rúnar Steinþórsson 3, Baldvin Þorsteinsson 2 (1 víti), Ólafur Gústafsson 2, Sigurður Ágústsson 1, Andri Berg Haraldsson 1, Ari Magnús Þorgeirsson 1. Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 22.

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?