FH vann æfingamótið í Grænlandi
24.10.2011
Guðjón Örn Helgason
Stelpurnar í meistaraflokki kvenna sigruðu grænlensku meistarana GSS í úrslitaleik Faxe Kondi
mótsins í handbolta 30-23.
FH vann alla fimm leiki sína í æfingamótinu en það fékk mikla umfjöllun í grænlenskum fjölmiðlum og var úrslitaleikurinn til að mynda sýndur í beinni útsendingu í ríkissjónvarpinu.
Það er mat manna að mótið hafi vakið mikla lukku og að FH hafi verið vel að sigrinum komið.
Steinunn Snorradóttir var þriðji markahæsti leikmaður mótsins með 24 mörk en Lykke Frank Hansen leikmaður GSS var markahæst með 35 mörk. Berglind og Sigrún voru næst markahæstar FH-inga með 19 mörk hvor.
Birna Íris var valin besti leikmaður liðsins í úrslitaleiknum en mörk liðsins í leiknum skoruðu þær:
Berglind 10, Birna Íris 5, Steinunn S. 5, Sigrún 4, Hind 2, Ingibjörg 2, Kristrún 1, Margrét 1.
Myndir frá mótinu
Næsti leikur liðsins er laugardaginn næstkomandi gegn Stjörnunni og hefst hann klukkan 16:00.