FH-Stjarnan, umfjöllun

30.1.2009 Heiðar Arnarson

      

34-22
N1 deildin, fimmtudagurinn 29. janúar 2009, kl 19:30


FH sigraði Stjörnuna mjög sannfærandi í N1 deild karla í gærkvöldi 34-22. Liðið varð fyrir blóðtöku skömmu fyrir leik en vel tókst að fylla skörð og allir áttu góðan dag í gær. (Myndahlekkur neðst)

Þær voru ekkert sérstakar fréttirnar sem liðsmenn fengu rétt fyrir leik en okkar markahæstu menn í vetur, Aron og Óli, gátu ekki spilað leikinn sökum meiðsla. Aron frá vegna brákaðs rifbeins og Óli meiddur í ökkla. Hjörtur spilaði heldur ekki sökum þrálátra ökklameiðsla en einnig var ljóst að Örn Ingi gæti ekki spilað vegna handarmeiðsla. Það var því orðið fátt um fína drætti hvað varðar vinstri skyttu-stöðuna og Guðmundur Pedersen, hornamaður var því dreginn út í skyttuna og hinn ungi og bráðefnilegi Benedikt Kristinsson tók stöðu hornamanns. Ásbjörn byrjaði á miðju, Hermann byrjaði í hægri skyttu, Bjarni Fritz í hægra horni og Siggi sem fyrr á línu. Maggi í markinu.

 

Fyrri hálfleikur

FH byrjaði ágætlega og Hermann gaf tóninn gegn sínum gömlu félögum. Hann skoraði tvö fyrstu mörk FHinga, annað með því smyrja hann fallega upp í skeytarnar fjær. Ákveðin skilaboð fólgin í því til fyrrum félaga. FH náði undirtökunum í leiknum og komst í 7-3, Stjörnumenn náðu að minnka muninn niður í 7-6 en FH fór síðan í 9-6 og síðan í 13-7. Liðið leit í raun aldrei til baka eftir þetta, en staðan í hálfleik var 18-11. Varnarleikurinn hélt geysivel með Sigurð Ágústsson í broddi fylkingar, gegn afar stöðum og hugmyndasnauðum Stjörnumönnum. FHingar refsuðu með hverju hraðaupphlaupi á fætur öðru og fór þar fremstur í flokki Benedikt Kristinsson. Staðan 18-11 í hálfleik.

 

Seinni hálfleikur

FH hélt fengnum hlut í seinni hálfleik fram undir 45. mínútu en þá gáfust Stjörnumenn algjörlega upp. Varnarleikur FH og markvarsla var þeim algjörlega ofviða og þeir réðu ekkert við skipulagðan sóknarleik FHinga. FH fór úr 25-18 í 28-18. Mestur fór síðan munurinn í 14 mörk, 34-20. Leikar enduðu eins og áður segir 34-22.

 

Niðurstaðan

Það kom á daginn að fjarvera Arons og Óla var sem vítamínssprauta fyrir þá sem komu inn í staðinn. Þannig á það líka að vera. Benni blómstraði í fyrri hálfleik, skoraði úr fjölda hraðaupphlaupa og skoraði skemmtileg mörk úr horninu. Ásbjörn átt prýðilegan leik, var vinnusamur, lék félaga sína vel uppi og skoraði frábær mörk. Bjarni spilaði vel fyrir liðið, skoraði mikið og nýtti vítaköstin vel. Siggi átti frábæran leik í vörninni í gær og stjórnaði eins og herforingi, vann bolta, átti fjöldan allan af blokkeringum og var mikilvægur sóknarlega. Maggi varði vel allan leikinn og Hilmar kom í markið síðustu 10 mínúturnar og fékk aðeins á sig tvö mörk, varði 6 skot, þar á meðal víti. Það kom þó berlega í ljós að liðsheild FH er gríðarlega sterk. Tekið var á þeim vandamálum sem sköpuðust þegar vinstri skyttustaðan lamaðist og málin leyst með sóma. Frábær leikur hjá FH í dag þó svo að mótspyrnan hafi verið lítil.

 

Markaskorun (mörk/skot(víti))

Bjarni Fritzson 10/13(3)

Benedikt Kristinsson 6/7

Ásbjörn Friðriksson 6/7

Guðmundur Pedersen 4/6(1)

Sigurður Ágústsson 2/2

Jónatan Jónsson 2/2

Hermann Björnsson 2/2

Ari Þorgeirsson 1/1

Sigursteinn Arndal 1/2

 

Varin skot (varið/skot á sig/(víti varið))

Magnús Sigmundsson (14/32)

Hilmar Þór Guðmundsson (6/10(1))

 

Staðan í N1 deildinni:

Nr. Félag Leik U J T Mörk Nett Stig
1. Haukar 13 9 0 4 374:330 44 18
2. Valur 13 7 3 3 362:309 53 17
3. FH 13 7 2 4 395:379 16 16
4. Fram 13 7 2 4 362:361 1 16
5. HK 13 5 3 5 344:354 -10 13
6. Akureyri 13 6 0 7 334:358 -24 12
7. Stjarnan 13 2 3 8 324:357 -33 7
8. Víkingur 13 2 1 10 336:383 -47 5

Aðrir leikir

Fim. 29.jan.2009 19.30 Framhús Fram - Haukar 20-30 (7-16)
Fim. 29.jan.2009 19.30 Vodafone höllin Valur - Akureyri 32-21 (17-8)
Fim. 29.jan.2009 19.30 Víkin Víkingur - HK 27-24 (11-14)
Fim. 29.jan.2009 19.30 Kaplakriki FH - Stjarnan 34-22 (18-11)

 

Stuðningur

Áhorfendur voru um 900 manns og hylltu sitt lið með ráð og dáð þó svo að spennan hafi verið í lágmarki. Næst er það þriðja orrustan um Fjörðinn þegar drengirnir okkar skunda á Ásvelli. FH hefur lagt Haukana í tvígang í vetur og ljóst að okkar menn hafa ekki planað að sleppa því taki sem þeir hafa náð á Haukunum í vetur. Það verður barist til síðasta blóðdropa á fimmtudaginn og toppsætið gæti verið í húfi! Ekki láta þér detta í hug að missa af þessum stórviðburði!!!

Sjáið myndir úr leiknum hjá Dalla einum af frábærum ljósmyndurum FH hér

Kjósið mann leiksins hér

 

Áfram FH!


Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH