FH stelpurnar komnar í undanúrslit
25.1.2012
Guðjón Örn Helgason
FH lagði Gróttu í 8-liða úrslitum Eimskipsbikars kvenna í handbolta 25-20 en leikar fóru fram í Kaplakrika.
Sigurinn var aldrei í hættu en staðan í hálfleik var 11-9.
Mörk FH skoruðu:
Kristrún 8, Ingibjörg 5, Sigrún 4, Steinunn S. 3, Birna Íris 3, Hind 1, Steinunn G. 1.
Liðið er því komið í undanúrslit og getur þar mætt ÍBV, Val eða Stjörninni. Dregið verður í hádeginu fimmtudaginn 26. janúar og leikið þann 8. febrúar.