FH-stelpur á landsliðsæfingum
29.10.2010
Davíð A. Stefánsson
Þær
Guðný Tómasdóttir og
Aldís Kara Lúðviksdóttir hafa verið boðaðar til æfinga með U17 ára landsliðii Íslands um helgina. Stelpurnar voru í liði Íslands sem tók þátt í undankeppni EM sem fram fór í Búlgaríu í haust. Þar sigraði liðið alla sína leiki sannfærandi og Aldís Kara gerði sér lítið fyrir og skoraði 9 mörk en það mun vera met í þeirri keppni.
Markmaðurinn
Birna Berg Haraldsdóttir, Sigmundína Sara varnarmaður og sóknarmaðurinn
Sigrún Ella Einarsdóttir eru einnig boðaðar til æfingum með U19. Stelpurnar voru allar lykilmenn í mfl. liði FH í sumar og eiga fjölda landsleikja að baki með yngri liðum Íslands.
FH-ingar óska stelpunum góðs gengis.