Vís

FH sigraði Aftureldingu

22.4.2010 Davíð A. Stefánsson
FH og Afturelding léku í dag í 3. umferð Lengjubikars kvenna á Ásvöllum í Hafnarfirði. Áður hafði FH lagt Suðurnesjaliðin Keflavík og Grindavík.

Leiknum í dag lauk með 4-0 en það var mál manna að vorbragur væri á liðunum. 
Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir skoraði eina mark fyrri hálfleiks með góðu langskoti.



Í síðari hálfleik skoruðu Liliana Martins og Jóhanna Steinþóra Gústavsdóttir mörk eftir stungusendingar í gegnum vörn Aftureldingar. Síðasta markið skoraði síðan Halla Marinósdóttir er hún fylgdi eftir skoti Elsu Petru Björnsdóttur sem markvörður Aftureldingar varði en náði ekki að halda.

Næsti leikur FH er gegn Haukum, þriðjudaginn 27. næstkomandi, á Ásvöllum kl. 20:00.

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?