Vís

FH Meistari Meistaranna eftir vítakeppni

20.9.2011 SR
FH sigraði í kvöld Val í sögulegum leik í Kaplakrika. Leikurinn fór nefnilega í vítakastkeppni eftir 2 framlengingar. Hér að neðan má sjá umfjöllun Sport.is um leiknn:

FH-ingar eru Meistarar meistaranna eftir hádramatískan leik gegn Val þar sem framlengja þurfti í tvígang. Það dugði þó ekki til þess að knýja fram sigurvegara og réðust úrslitin því í vítakeppni. Það má því segja að handboltinn hafi byrjað með látum en hann hefst formlega á mánudaginn með leikjum í N1-deild karla.

FH 39-38 Valur (17-13) (27-27) (31-31) (35-35)

Íslandsmeistarar FH byrjuðu betur í kvöld og skoruðu fyrstu fjögur mörk leiksins. Sókn FH, með Andra Berg Haraldsson í broddi fylkingar var afar sannfærandi og réð vörn Valsmanna lítið við góðar sóknir lengi vel í hálfleiknum. Valsarar hresstust aðeins eftir því sem á leið á hálfleikinn án þess þó að ná að ógna forystu FH af einhverju viti en minnstur var munurinn tvö mörk í stöðunni 12-10. Fyrrnefndur Andri Berg var í miklu stuði í liði FH í fyrri hálfleiknum og fékk á löngum köflum að skjóta nánast að vild og uppskar fyrir vikið sjö mörk í hálfleiknum. Valsmenn sýndu einnig lipra takta á köflum en það voru heimamenn í FH sem voru yfir með fjórum mörkum í hálfleik, 17-13.

Valsmenn byrjuðu síðari hálfleikinn talsvert betur en þann fyrri og voru fljótlega búnir að minnka muninn niður í eitt mark. Þeir fengu þónokkur færi til þess að jafna leika en það var helst Daníel Andrésson, markvörður FH-inga sem stóð í vegi fyrir því enda var Daníel í miklu stuði framan af síðari hálfleik. FH-ingar lentu í basli með að hrista Valsara af sér aftur og þegar 15. mínútur voru eftir af leiknum munaði einungis tveimur mörkum og útlit fyrir spennu seinustu mínúturnar. Valsarar náðu svo loksins að jafna leikinn í stöðunni 22-22 þegar að 12 mínútur voru eftir af leiknum. Þegar rétt rúmar fimm mínútur voru eftir fengu Valsmenn kjörið tækifæri til þess að komast yfir en Daníel Andrésson varði frábærlega úr hraðaupphlaupi frá Sturlu Ásgeirssyni. Sturlu brást þó ekki bogalistinn stuttu síðar þegar hann fékk samskonar tækifæri og kom Valsliðinu yfir í fyrsta sinn í leiknum, staðan 26-27 fyrir Val. Þegar mínúta var eftir var staðan svo jöfn, 27-27 og spennan í hámarki. Hvorugu liðinu tókst að koma inn marki og því þurfti að framlengja leikinn.

FH-ingar byrjuðu framlenginguna betur, skoruðu 3 af þeim fjórum mörkum sem skoruð voru í fyrri hluta framlengingarinnar og voru því með tveggja marka forystu þegar framlengingin var hálfnuð. Valsmenn svöruðu því með að skora fyrstu tvö mörk síðari hlutans og jafna þar með leikinn. Spennan var gjörsamlega að fara með menn og þegar að mínúta var eftir voru Valsarar einu marki yfir en jafnframt þremur leikmönnum færri. Þremur Valsmönnum tókst ekki að halda út forystuna og FH-ingar náðu að jafna, leiktíminn rann út og því þurfti aðra framlengingu.

Í seinni framlengingunni byrjuðu Valsmenn þremur færri og FH-ingar nýttu sér það til að skora fyrsta markið. Valsarar voru svo fljótlega komnir með fullskipað lið og náðu að jafna leikinn á ný. Valsmenn voru svo einu marki yfir þegar að síðari framlengingin var hálfnuð og spennan í Kaplakrikanum var rafmögnuð. Aftur náðu FH-ingar að jafna leikinn og virtist hreinlega útilokað að knýja fram sigurvegara. Þegar að þrjátíu sekúndur voru eftir var staðan enn jöfn og húsið hreinlega að klofna af spennu. Bæði lið fengu tækifæri til þess að tryggja sér sigur en allt kom fyrir ekki, leiktíminn rann út og því þurfti að grípa til vítakastskeppni.

Bæði lið nýttu fyrstu tvö vítin sín en misnotuðu síðan þá næstu. Baldvin Þorsteinsson skoraði svo úr síðasta víti FH-inga og því pressan mikil á Sturlu Ásgeirssyni fyrir seinasta vítakast Vals. Hann skaut í slánna úr vítinu og FH-ingar urðu þar með Meistarar meistaranna. FH-ingar hreinlega ærðust af fögnuði enda hafði spennan verið gríðarleg.

Leikurinn í kvöld bar þess greinilega merki um að handboltaleiktíðin er rétt að fara af stað, en lofar aftur á móti góðu fyrir framhaldið. Andri Berg Haraldsson var óumdeilanlega besti maður vallarins og skoraði 15 mörk því til sönnunar. Hjá Val var Sturla Ásgeirsson markahæstur með 10 mörk.

Fyrsti leikur FH í N1-deildinni er 26. september í Kaplakrika gegn Fram!!!!

Umfjallanir og viðtöl.

http://mbl.is/sport/handbolti/2011/09/20/fh_hafdi_betur_gegn_val_i_vitakeppni/

http://visir.is/umfjollun--fh-meistari-meistaranna-i-fyrsta-sinn-eftir-sigur-a-val-i-vitakeppni/article/2011110929875

http://visir.is/kristjan--tekur-tima-ad-pusla-thessu-saman/article/2011110929870

Einnig eru myndbandsviðtöl við þjálfara og leikmenn á Sport.is




Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?