FH Íslandsmeistarar í 5. flokki karla C

6.9.2010 Benedikt Gunnar Ívarsson
Á sunnudag léku strákarnir í 5. flokki karla við Þór frá Akureyri í úrslitum á Íslandsmótinu í flokki C liða.  Frábær barátta og skemmtilegur fótbolti skila 2-1 sigri og Íslandsmeistaratitlinum hampað með glæsibrag.  Þess má einnig geta að A liðið í 5. flokki karla lék til úrslita á síðastliðin laugardag en urðu að lúta í lægra haldi að þessu sinni fyrir Stjörnunni í hörkuleik.

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?