Vís

FH í forkeppni meistaradeildar Evrópu

28.6.2011 SR

Ferðinni er heitið til Ísrael í byrjun september þar sem forkeppnin mun fara fram nánar til tekið til Tel Aviv en Ísraelska liðið leikur rétt hjá þeirri borg. FH mun leika við Noregsmeistara Haslum í undanúrslitaleik en líklegt má telja að sígurliðið í þeim leik mæti Metalurg frá Makedóníu í úrslitaleik um sæti í meistaradeildinni. Mótið fer fram 2 – 4 september.

Liðið sem sigrar í þessari forkeppni fer í meistaradeild Evrópu. Þar mun sigurliðið fara í C - riðil meistarardeildarinnar og spila við Þýskalandsmeistara Hamburgar, Koper frá Slóveníu, Constanta frá Rúmeníu, Petersburg frá Rússlandi og Póllandsmeisturum Wisla Plock


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?