Vís

FH - HK, fimmtudaginn 8. desember

7.12.2011 Steingrímur Gústafsson
Á morgun, 8. desember fer fram stórleikur í Krikanum, en þá koma HK-ingar í heimsókn. Strákarnir þurfa á öllum mögulegum stuðningi að halda og því skiptir það máli að ÞÚ mætir og styðjir þá fram til sigurs. Þetta er mjög mikilvægur leikur ætli FH að vera með í toppbaráttunni en HK er í 2. sæti og FH í 4. sætinu. Leikurinn byrjar klukkan 19:30 á morgun en hamborgarar verða grillaðir frá klukkan 18:30. Mætum með fjölskyldustemningu í Krikann á morgun og fáum okkur borgara fyrir leik og hvetjum FH fram til sigurs. VIÐ ERUM FH!!!

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?