Vís

FH fer til Frakklands í 3 umferð

18.10.2011 SR
Íslandsmeistarar FH í handknattleik karla drógust gegn franska liðinu Saint Raphaël íí 3. umferð EHF-keppninnar í handknattleik, en dregið var fyrir nokkrum mínútum í höfuðstöðvum Handknattleikssambands Evrópu í Vínarborg. Ráðgert er að fyrri leikur liðanna fari fram í Hafnarfirði 26. eða 27. nóvember og síðari leikurinn ytra viku síðar. Saint Raphaël hefur verið í mikilli sókn í frönskum handknattleik síðustu árin. Nú er það efst og taplaust eftir fimm umferðir í frönsku 1. deildinni með 10 stig að loknum fimm leikjum ásamt Montpellier og Chambéry. Tveir íslenskir handknattleiksmenn hafa leikið með Saint Raphaël. Bjarni Fritzson lék með því um tveggja ára skeið og Jónatan Þór Magnússon var í herbúðum þess þegar það var í næst efstu deild um miðjan síðasta áratug. tekið af mbl.is

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?