Vís

FH er komið í undanúrslit í Eimspiks-bikarnum

13.12.2011 Steingrímur Gústafsson
FH er komið í undanúrslit í Eimspiks-bikarnum eftir 18-28 sigur gegn Gróttu á Seltjarnesinu í kvöld. Þorkell Magnússon var markahæsti leikmaður FH með 10 mörk þar af 7 úr vítum. Daníel Freyr Andrésson átti stórleik í markinu og varði 18 skot sem gerir 58% markvörslu. FH-ingar mæta annað hvort Fram, HK eða Haukum í undanúrslitunum sem fara fram 13.desember. Tveir leikir eru eftir í deildinni fram að jólum en það er aftur leikur gegn Gróttu, nú í N1-deildinni á fimmtudag klukkan 19:30, aftur úti á Nesi og svo á mánudaginn þar á eftir 19. desember gegn Haukum í Kaplakrika. Umfjallanir um leikinn má sjá á www.sport.is/handbolti og hér: http://www.visir.is/umfjollun-og-vidtol--grotta---fh-18-28-|-fh-i-undanurslit-bikarsins/article/2011111219753

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?