Vís

FH - CD Nacional á fimmtudag.

11.7.2011 Hermann Valgarðsson
FH-ingar mæta portúgalska liðinu CD Nacional í Evrópukeppninni í Kaplakrika nk. fimmtudag, 14. júlí. Leikurinn hefst kl. 19.15.

Bæði lið sátu yfir í fyrstu umferð Evrópukeppninnar og koma nú inn í aðra umferð.

Óhætt er að segja að CD Nacional sé fjölþjóðlegt lið því þar innanborðs er fjöldi Brasilíumanna, Króata, Slóvena og Angólamanna auk Portúgala. Liðið endaði í sjötta sæti portúgölsku deildarinnar á síðasta tímabili, en sú deild er gífurlega sterk, enda voru þrjú portúgölsk lið í fjögurra liða úrslitum Evrópukeppninnar sl. vor og Porto hafði þar að lokum sigur. Þess má geta að CD Nacional er uppeldisfélag leikmanns Real Madrid, Christiano Ronaldo.

Til marks um áhuga Portúgala á leiknum við FH á fimmtudagskvöldið verður hann sendur út í beinni sjónvarpssendingu til Portúgal.

Sem fyrr segir hefst leikurinn í Kaplakrika nk. fimmtudagskvöld kl. 19.15. Miðaverð er kr. 2.000, en 1.500 kr. fyrir Bakhjarla. Frítt er fyrir 16 ára og yngri.

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?