Vís

FH - Akureyri á morgun - 500 kr. af seldum miðum í minningarsjóð um Hermann

22.11.2011 Steingrímur Gústafsson
Kæru FH ingar! Á leiknum á morgun, FH-Akureyri munu 500.- krónur af miðaverði renna í sjóð sem stofnaður hefur verið á nafni Loga Þórs Hermannssonar, son FH-ingsins, Hermanns Fannars, heitins, sem lést langt um aldur fram. ATH Leikurinn er klukkan 18.30 !! Á grillinu verða félagar Hermanns í B liði FH.

Akureyri mætir með blóð á tönnum eftir slæma útreið í Krikanum fyrir rúmlega viku síðan. Það er því ljóst að strákarnir þurfa að taka á öllu sem þeir eiga til að ná í góð úrslit á morgun. Mætum öll og hvetjum liðið til sigurs og styrkjum um leið fjölskyldu Hermanns Fannars á þessum erfiðu tímum.




Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?