Vís

FH - Akureyri - 2. hluti

27.4.2011 Benedikt Gunnar Ívarsson
FH - Akureyri, föstudaginn 29. apríl kl. 20:15

Framundan er leikur 2 í úrslitaviðureign FH og Akureyri sem af mörgum eru talin tvö bestu lið landsins í dag.  Það verður mikið um dýrðir þegar leikur hefst í Kaplakrika föstudaginn 29. apríl kl. 20:15.

Miðasala hefst kl. 17:00

Almenn upphitunardagskrá hefst kl. 19:00

ÚRVALSDEILDIN GRILLAR
Meistaraflokkur karla í knattspyrnu hitar upp fyrir sumarið og grillar hamborgara að hætti bikarmeistara.

BRÆÐUR BERJAST
Jón Jónsson og Friðrik Dór leiða saman hesta sína og úr verður alvöru tónlist beint frá hjartanu.

GRILLUM AÐ LEIKSLOKUM
Eftir leik verður grillveisla eins og þær gerast bestar og tónlistin með borðhaldinu verður kokkuð af Júlladiskó.
Miðaverð á grillveisluna er kr. 2.500 (kr. 2.000 fyrir bakhjarla).

KOMDU Í LJÓS
Það verður mikið um dýrðir þegar Jói Run skellir í fluggírinn með ljósasjóvi og margmiðlun á heimsmælikvarða.

Miðaverð á leikinn: kr. 1.500, frítt fyrir 15 ára og yngri.

Auglýsing á FH TíVí.


         

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?