FH – Stjarnan á morgun

4.3.2009 Heiðar Arnarson
       

N1 deildin, Kaplakriki, fimmtudagurinn 5. mars 2009, kl 19:30


FH tekur á móti Stjörnunni annað kvöld kl 19:30 eftir góða pásu en FH lék seinasta leik fyrir tæpum 2 vikum. Það eru tvö mikilvæg stig hér í boði en FH berst áfram um sæti í úrslitakeppni og spennan því í algleymingi.

Stjarnan

Stjarnan hefur aðeins unnið þrjá leiki og gert þrjú jafntefli. 10 hafa endað með tapi. Þeir unnu góða sigra gegn HK, Akureyri og Víkingi og gerðu t.a.m. jafntefli við Val. Stjörnumenn sitja nokkuð einangraðir í næstneðsta sæti með 9 stig, 4 stigum á undan Víkingi en 6 stigum á eftir Akureyri. FH liðið er í 4. sæti með18 stig, hefur sigrað 8 leiki gert tvö jafntefli en tapað 6 leikjum.

Stjörnuliðið

Stjarnan hefur ekki staðið undir þeim væntingum sem gerðar voru til liðsins fyrir tímabilið en liðið er með fínan mannsskap. Margt hefur spilað inn í eins og meiðsli og bág fjárhagsstaða en fyrir áramót sagði handknattleiksdeild upp öllum samningum við leikmenn. Flestir hafa þó haldið áfram með liðinu að undanskildum Hermanni Björnssyni sem gekk í raðir okkar FHinga og Fannari Friðgeirssyni sem fór aftur í Val. Stjarnan hefur á að skipa sterka leikmenn eins og Björgvin Hólmgeirsson, Vilhjálm Halldórsson og Fannar Þorbjörnsson.

Stuðningur

FHingar eru hvattir til að mæta í Krikann annað kvöld og styðja sína menn áfram. Framundan er hörkubarátta og miklir möguleikar fyrir hið unga FH lið. Mætum öll á morgun!!!

 

Áfram FH



Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?