Farsælt samstarf framlengt

4.1.2012 SR
Knattspyrnudeild FH og Actavis hafa endurnýjað samstarf sitt til næstu tveggja ára. Samningur þess efnis var undirritaður á gamlársdag. Samstarf FH og Actavis (þá Delta) hófst árið 2001 og fer því í hönd tólfta keppnistímabilið sem fyrirtækið er aðalstuðningsaðili knattspyrnudeildarinnar.
Sá trausti stuðningur sem Actavis hefur veitt FH undangengin ár hefur átt ríkan þátt í að gera félaginu kleift að halda úti sinni öflugu starfsemi í öllum aldursflokkum knattspyrnunnar.

Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri Actavis, og Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH, undirrituðu nýja samninginn. Við það tækifæri var Guðbjörg Edda sæmd gullmerki FH.


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?