Vís

Endaspretturinn

26.8.2011 Davíð A. Stefánsson

Yfirstandandi tímabil hefur verið sérlega gott fyrir mfl. og 2. fl. kv. hjá FH í fótbolta. Meistaraflokkur hefur unnið alla sína leiki í A-riðli 1. deildar, skorað 81 mark en fengið á sig 11, og leikur gegn Haukum í úrslitum um sæti í Pepsi-deildinni að ári. 2. fl. er sem stendur í toppbaráttunni í A-riðli, er komin í bikarúrslitaleikinn og í liðinni vikur varð liðið Íslandsmeistari í 7 manna boltanum.

Framundan eru mikilvægustu leikir ársins fyrir stelpurnar sem sumar hverjar leika bæði með 2. og mfl. Á morgun kl. 12:00 mætir mfl. FH Haukum á Ásvöllum í fyrri leik liðanna um sæti í efstu deild. Síðari leikurinn fer fram í Krikanum þriðjudaginn næstkomandi kl. 17:30. Þriðjudaginn 27. september er svo leikið til úrslita í bikarnum en andstæðingar FH verða Þór frá Akureyri.

Stjórn kvennaráðs FH skorar á alla alvöru FH-inga að mæta á völlinn og styðja stelpurnar. Oft var þörf en nú er nauðsyn. FH skal í efstudeild að ári.


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?