Vís

EHF-keppnin: FH komið í 3. umferðina

18.10.2011 steingrimur
Það var boðið uppá æsispennandi leik á sunnudaginn sl. þegar belgíska liðið Initia Hasselt heimsótti FH í síðari leik liðanna í EHF-keppninni. FH vann fyrri leikinn 29-28 á útivelli og nægði því jafntefli til að komast áfram. FH byrjaði vel í leiknum og leiddi 15-8 í hálfleik. Belgarnir léku betur í seinni hálfleik og það munaði hársbreidd að þeir ynnu með 2 mörkum sem hefði tryggt liðinu áframhaldandi þátttöku í keppninni. Þeir klúðruðu hins vegar seinustu sókn leiksins illa og lauk leiknum með 28-27 sigri Initia sem nægði þeim ekki og FH er komið áfram. Það verður dregið í hádeginu í dag og skýrist þá hvað liði FH-ingar mæta, en möguleg lið eru: Besiktas JK Tatran Presov Pfadi Winterthur RK Gorenje Velenje Sungul Snezhinsk FC Porto Vitalis Haslum HK Maccabi Srugo Rishon Lezion Saint Raphael Var Handball Frisch Auf Göppingen Rhein-Neckar Löwen SC Magdeburg Dunkerque HB Grand Littoral Fraikin BM. Granollers Skjern Handbold Dinamo Minsk Markahæstu menn í leiknum gegn Initia: Baldvin Þorsteinsson 5, Örn Ingi Bjarkason 5, Hjalti Pálmason 4, Andri Berg Haraldsson 3, Halldór Guðjónsson 3,Ólafur Gústafsson 2, Atli Rúnar Steinþórsson 2, Magnús Óli Magnússon 1, Þorkell Magnússon 2. Varin skot: Daníel Andrésson 13. NÆSTI LEIKUR FH ER Á FIMMTUDAGINN NK. GEGN GRÓTTU Í KAPLAKRIKA KL. 19:30 !!!

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?