Vís

Dagskrá Boltaskólans í vikunni

11.7.2011 Orri Þórðarson

Á morgun, þriðjudaginn 12. júlí, ætlum við í Boltaskólanum (f.'06-'07) að fara saman í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinn. Það er mæting kl.9 í Kaplakrika eins og venjulega og við förum með rútu inn í Laugardal. Krakkarnir verða í merktum vestum og verða a.m.k. 2 leiðbeinendur með 5-6 barna hóp. Foreldrar og eldri systkini eru hjartanlega velkomin með. Það er spáð fínu veðri en krakkarnir verða að vera klædd eftir veðri og vera með gott nesti. Ferðin er ókeypis fyrir krakkana en athugið að foreldrar og systkini þurfa að borga fyrir sig. Við verðum komin til baka í Kaplakrika um eða eftir kl. 12.

Á miðvikudaginn ætlum við svo í gönguferð niður að læk þar sem við förum í leiki og gefum öndunum brauð.

Á föstudaginn viljum við bjóða foreldrum að koma um kl. 11 og vera með í leikjum með krökkunum ef þau hafa tök á. Þá ætlum við að grilla og afhenda viðurkenningarskjöl.


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?