Bikardraumurinn úti – Umfjöllun

9.2.2009 Heiðar Arnarson

        

29-25
Eimskipsbikarinn, sunnudagurinn 8. febrúar 2009, kl 16



FH lá fyrir sterku liði Vals í 4 liða úrslitum Bikars í gær 29-25. Þar með er þátttöku FH lokið í Bikarkeppninni að þessu sinni. FH lék án fjögurra lykilmanna í gær og gegn sterku liði Valsmanna sem hefur breiðan leikmannahóp er þrautin þyngri að ná sigri. FH liðið gerði þó allt sem það gat í þessum leik og var félaginu og áhangendum til sóma.

Það var boðið upp á frábæra umgjörð í boði Vals og FH í gær. Ingó úr veðurguðunum tróð upp um klukkutíma fyrir leik og frábærir trymblar mynduðu góða stemmningu. Áhorfendur fóru að streyma inn ca 3 korter-hálftíma fyrir leik, flestir FHingar og án efa voru FHingar fjölmennari og virkari á leiknum en Valsmenn. Frábært ljósashow var svo sett upp við kynningu leikmanna.

 

Fyrri hálfleikur

Leikurinn hófst með mikilli baráttu og jafnræði var til að byrja með. Jafnt var á öllum tölum fram í stöðuna 6-6 en þá fór að síga á ógæfuhliðina hjá okkar mönnum. Valsmenn settu í lás í vörn, Pálmar markvörður þeirra varði nær allt sem á markið kom og Valur skoraði nokkur auðveld mörk úr hraðaupphlaupum. Á meðan var sókn okkar rög og passíf og illa gekk að finna færi. Vörnin var stöð og menn virtust ekki ráða við ákveðna Valsmenn á þessum kafla. Staðan fór úr 6-6 í 13-7 og fór síðan mest í 15-8. FH lagaði stöðuna þó ögn fyrir leikhlé í 18-13.

 

Seinni hálfleikur

Það var ljóst að FHingar ætluðu ekki að sætta sig við að láta kaffæra sér í mikilvægasta leik félagsins í mörg ár. Þeir komu tvíefldir til leiks og með góðri vörn og skynsömum sóknarleik, frábærri markvörslu Magga Sigmunds og stórkostlegri hvatningu FH áhorfenda sem yfirgnæfðu húsið, komst liðið aftur inn í leikinn og skoraði 6 mörk gegn 2 mörkum Vals á fyrstu 10 mínútum seinni hálfleiks. Staðan orðin 20-19 og allt stemmdi í hörkuspennu. Því miður virtist mikið af bensíninu klárast við þennan kafla hjá liðinu. Valsmenn snéru þá dæminu við og skoruðu 6 mörk gegn 2 mörkum FHinga 26-21og fóru ansi langt með leikinn. FH klóraði í bakkann, komst í 27-24 þegar 3 mínútur voru eftir en því miður komst það ekki lengra að þessu sinni og Valur hafði þetta 29-25.

 

Niðurstaðan

Því miður þurftum við að sjá á eftir Bikarnum í þetta skiptið. Mikil stemmning og eftirvænting var búin að vera fyrir þessum leik í Hafnarfirði. Sigurvegarinn yrði mikill Bikarmeistarakandídat þar sem mótherjinn í úrslitum er 1. deildarlið og ekki af sama kalíberi. Þó er óþarfi að vera mjög ósáttur. Liðið gerði það sem það gat og framtíðin er sannarlega björt.

Gaman var að sjá Pálma nokkurn Hlöðversson mættan í FH liðið á ný. Hann stóð vaktina vel í vörn en kappinn ákvað að hlaupa í skarðið eftir töluvert brottfall fyrir þennan leik en Pálmi hefur verið frá handboltaiðkun í allnokkurn tíma vegna meiðsla. Maggi Sigmunds byrjaði mjög rólega í leiknum en í seinni hálfleik varði hann eins og berserkur og tók 19 bolta allt í allt. Gummi lék ágætlega heilt yfir, nýtti flest sín færi. Ásbjörn lék ágætlega, var lengi í gang og hefði mátt sækja ákveðnar á markið en var mikilvægur. Aron hefur átt betri daga. Spilið byggðist mikið upp á honum og á að koma honum í færi og ljóst að meiðsli hans hrjáðu hann. Hann var þó mjög oft óheppinn þegar boltinn small hvað eftir annað í slánni. Siggi var góður í vörn sem sókn og Bjarni átti ágæta spretti.

 

Markaskorun (mörk/skot(víti))

Gummi Ped 6/8

Ási 5/11

Bjarni 4/6

Siggi 3/3

Hjörtur 2/3

Aron 3/12

Steini 2/3

 

Varin skot (varið/skot á sig(víti varið))

Maggi 19/47

Hilmar 0/1

 

Stuðningur

Frábært var að sjá hversu breiður hópur stuðningsmanna FH mætti í gær og alveg hreint magnað að upplifa stemmninguna þegar hún var sem mest í byrjun seinni hálfleiks. Þetta hjálpaði liðinu gríðarlega og ljóst að FH stuðningsmenn eru án efa bestu stuðningsmenn á landinu enda er nóg að horfa á áhorfendatölur til marks um það. Þetta er bara byrjunin. Nú er að fókusera á deildina og hjálpa liðinu í að ná dýrmætu sæti í úrslitakeppni. Akureyri mæta næst í Krikann á fimmtudagskvöldið og nú er um að gera að mæta og styðja liðið með ráð og dáð í síðusta hluta mótsins.



Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?