Baráttan um Fjörðinn, 3. orrusta

3.2.2009 Heiðar Arnarson

N1 deildin, fimmtudagurinn 5. febrúar 2009, kl 19:30

Okkar menn munu mæta á Ásvelli fimmtudaginn 5. febrúar nk. kl 19:30. Um er að ræða þriðja í orrustu og vonandi þriðja sigur FH á Haukum í vetur. Drengirnir okkar hafa sigrað vora erkifjendur í tvígang; í deildinni 5. nóvember og í Bikarnum 7. desember þar sem báðir leikir enduðu 29-28. Um var að ræða skemmtilegustu handboltaleiki á Íslandi í mörg mörg ár.


Gengi liðanna

Haukar byrjuðu mótið frekar illa. Mikið leikjaálag var á liðinu en það tók þátt í Meistaradeild Evrópu sem hafði áhrif á leik þess heimafyrir. Þeir réttu þó fljótlega úr kútnum, náðu að verða í efstu 4 sætum deildarinn fyrir áramót og spiluð þeir til úrslita um deildarmeistaratitilinn milli jóla og áramóta þar sem þeir biðu reyndar lægri hlut fyrir Frömmurum. Þeir hafa síðan sigrað báða leiki sína eftir áramót á sannfærandi hátt og eru sem stendur í toppsætinu með 18 stig.

Gengi FH liðsins hefur verið mjög gott. Leikur þess var stigvaxandi í byrjun móts en dalaði örlítið fyrir jólapásuna. Liðið hefur síðan verið sannfærandi í báðum leikjum sínum eftir áramót. FH hefur einnig átt láni að fagna í Eimskipsbikarnum og er komið í undanúrslit. Liðið situr nú í 3. sæti með 16 stig, tveimur stigum á eftir Haukum. Það gæti því farið svo að ef Valur, sem situr í 2. sæti með 17 stig, bíður lægri hlut fyrir HKog FH sigri Hauka verði Fimleikafélagið í toppsætinu vegna betri innbyrðis viðureigna.

Síðustu viðureignir liðanna

Þessi lið mættust þann 7. nóvember sl í N1 deildinni og 5. nóvember sl. Í Eimskipsbikarnum og þá fóru þessi fleygu orð um vef FH :
Stærsti leikur ársins í íslenskum handbolta er að renna upp. Bræðrabyltan. Slagurinn um Hafnarfjörð. FH gegn Haukum. Fræðimenn segja að orðtakið "blóð, sviti og tár" hafi fyrst verið notað um leik þessara liða snemma á síðustu öld. 

Það kom líka á daginn að um stórkostlegan viðburð var að ræða. Afar klassísk FH-Haukastemmning kom upp í þessum tveimur leikjum þar sem húsfyllir var í bæði skiptin. Þessi stemmning smitaði út frá sér og lyfti plani handboltans hér heima á hærri stall. Í fyrri leiknum höfðu Haukar undirtökin í fyrri hálfleik og leiddu með 4 mörkum í hálfleik. FH beit frá sér í byrjun seinni hálfleiks og náðu fljótlega að jafna. Leikurinn var í járnum eftir það. FH hafði meira hungur þegar á hólminn var komið og afar sætur FH sigur 29-28 staðreynd þar sem mikið óðagot var síðustu mínútuna. Seinni leikurinn sem var Bikarleikur þróaðist öðruvísi þar sem FH hafði undirtökin allan leikinn og leiddu yfirleitt með 2-4 mörkum allt þar til í lokin. Haukar gerðu leikinn töluvert spennandi en FH hélt fengnum hlut. Mikil læti urðu í leikslok eins og menn muna eftir og sitt sýnist hverjum um þau málalok eftir annars frábæran handboltaleik.

 

Undirbúningur

Undirbúningur er í fullum gangi fyrir þennan mikilvæga leik. FH liðið kemur vel undan tveimur sigurleikjum gegn Fram og Stjörnunni þrátt fyrir skakkaföll er varðar meiðsli leikmanna. Maður kemur í manns stað og áherslur eru þær sömu.

 

Ástand

Óvíst er með þátttöku þeirra Arons og Óla í leiknum en þeir hafa átt við meiðsli að stríða og léku ekki gegn Stjörnunni á fimmtudaginn var. Jón Helgi Jónsson er aftur á móti á batavegi, sem og Örn Ingi. Hjörtur verður eitthvað frá áfram. Liðið hefur aftur á móti góða breidd eins sást bersýnilega í síðasta leik gegn Stjörnunni.

 

Staðan í N1 deildinni:

Nr. Félag Leik U J T Mörk Nett Stig
1. Haukar 13 9 0 4 374:330 44 18
2. Valur 13 7 3 3 362:309 53 17
3. FH 13 7 2 4 395:379 16 16
4. Fram 13 7 2 4 362:361 1 16
5. HK 13 5 3 5 344:354 -10 13
6. Akureyri 13 6 0 7 334:358 -24 12
7. Stjarnan 13 2 3 8 324:357 -33 7
8. Víkingur 13 2 1 10 336:383 -47 5

 

Aðrir leikir:

Fim. 5.feb.2009 19.30 Vodafone höllin Valur - HK

Fim. 5.feb.2009 19.30 Höllin Akureyri Akureyri - Fram

Fim. 5.feb.2009 19.30 Ásvellir Haukar - FH

Fim. 5.feb.2009 19.30 Mýrin Stjarnan - Víkingur

 


Stuðningur

Þetta er þriðji í orrustu góðir FHingar og nú er leikurinn haldinn sunnan læks. Stuðningur ykkar var ómetanlegur í síðustu tveimur rimmum í Krikanum og fleytti liðinu klárlega yfir stærsta hjallinn. Það er því ekkert að vanbúnaði en að mynda sömu stemmningu á Ásvöllum á fimmtudagskvöldið, þramma niður eftir og sigra Haukana í þriðja skiptið í vetur! Drengirnir eru búnir að finna bragðið gegn Haukunum og ætla sér að halda áfram góðu taki!!!

Áfram FH!!!


 



Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?