Baráttan um Fjörðinn – 4. orrusta

8.3.2009 Heiðar Arnarson

N1 deildin, Ásvellir, mánudagurinn 9. mars 2009, kl 19:30


FH mætir upp á Ásvelli á morgun mánudag í fjórðu rimmu liðanna í vetur. Leikurinn hefst 19:30. FH hafa sigrað tvo leiki gegn Haukum í vetur en Haukar tekið einn leik.

Spennan er í algleymingi í N1 deild karla. Aðeins 4 leikir eru eftir í deildarkeppninni og mikil barátta er nú um sæti í úrslitakeppninni fjögurra efstu liða.

Gengi liðanna

Haukar hafa verið á mikilli siglingu frá því í nóvember en þeir hafa ekki tapað stigi í deildinn frá því að þeir töpuðu fyrir okkur FHingum 5. nóvember sl. Það gera 9 sigurleikir í röð. Liðið virðist afar sannfærandi í sínum leik og sjálfstraustið mikið í liðinu. Liðið hafði þó hægt um sig í byrjun móts og náði aðeins 6 stigum úr fyrstu 7 leikjunum. Það virðist því fátt koma í veg fyrir að Haukar landi 1. sætinu enda með ólíkindum ef annað gerist miðað við mannskap og fjárútlát.

FH liðinu hefur heilt yfir gengið afar vel. Það hefur samt gengið upp og ofan eftir áramót þar sem FH sigraði Fram og Stjörnuna í tveimur góðum leikjum, töpuðu svo illa fyrir Haukum og náðu góðum sigri gegn Akureyri. Síðan hefur maskínan verið að hiksta undanfarið og hefur FH tapað síðustu tveimur leikjum þar sem leikur liðsins hefur ekki verið sannfærandi bæði í vörn og sókn og í raun verið ólíkur því sem hann almennt hefur verið í vetur. FH liðið er þó enn í harðri baráttu við HK, Fram og Akureyri um að ná 3-4 sætinu í deildinni og það er klárlega markmið liðsins að tryggja sig þar inn.


Haukar

Eins og segir að ofan hafa Haukar á að skipa frábæran mannskap. Þeirra bestu menn í vetur hafa óneitanlega verið Sigurbergur Sveinsson, Kári Kristjánsson, Andri Stefan og Freyr Brynjarsson. Þegar tölfræði Haukamanna er skoðuð kemur í ljós að Sigurbergur hefur mikla yfirburði í markaskorun liðsins en hann hefur skorað rétt tæplega helmingi fleiri mörk en næsti maður sem er línumaðurinn Kári. Skv tölum hsi.is hefur Sigurbergur skorað 114 mörk og Kári næstur með 64. Það þarf því engan sérfræðing til þess að sjá á hverju sóknarleikur Hauka byggir og ljóst að FH þarf klárlega að skoða vel mögulega veikleika Haukamanna og nýta sér þá annað kvöld ætli þeir sér sigur.

Undirbúningur og ástand

Undirbúningur er styttri en ella en þétt er leikið í þessari viku eða 3 leikir á 8 dögum. Það er þó hið besta mál að leikið sé fljótt eftir slæmt tap gegn Stjörnunni þar sem FH liðið var afar ólíkt sjálfu sér ¾ úr leiknum. Nú er mál að liðið hristi vel upp í sér og sýni hvað í sér býr. Mótiveringin er til staðar, um er að ræða derbí leik FH og Hauka, klassískur baráttuleikur þar sem fullt verður útúr dyrum og ekkert gefið eftir. Blóð sviti og tár!!! Við eigum harma að hefna eftir stórt tap fyrir þeim úr síðasta leik og nú mun liðið fara á Ásvelli og gera allt sem það getur til að sigra!

Ástand leikmanna er almennt gott. Aron er á góðum batavegi, Ólafur nokkur Gústafsson er kominn aftur á gólfið eftir erfið og löng meiðsli og gaman var að sjá kallinn setja eitt mark í fyrsta leik sínum í vetur sl. fimmtudagskvöld. Óli Guðmunds er á góðum batavegi eftir aðgerð á ökkla og orðinn laus við hækjur. Jón Helgi Jónsson er á leið í speglun á öxl. Síðan eru Heiðar og Árni enn utan liðs.

Staðan í deild

Nr. Félag Leik U J T Mörk Nett Stig
1. Haukar 17 13 0 4 491:422 69 26
2. Valur 17 10 3 4 469:400 69 23
3. Fram 17 8 3 6 467:466 1 19
4. HK 17 7 4 6 451:459 -8 18
5. FH 17 8 2 7 507:502 5 18
6. Akureyri 17 7 2 8 437:462 -25 16
7. Stjarnan 17 4 3 10 425:463 -38 11
8. Víkingur 17 2 1 14 418:491 -73 5


Stuðningur

Þó svo að seinasti leikur hafi ekki verið góður voru áhorfendur frábærir sem endranær og drógu ekkert úr hvatningu sinni þegar verst gekk. Það kallar maður alvöru stuðningsmenn. FH stuðningsmenn eru hvattir til að leggja leið sína á Ásvelli annað kvöld og styðja liðið með ráð og dáð áfram. FH hefur lagt þetta Haukalið tvisvar sinnum í vetur og framundan er fjórði leikur og klárlega þriðji FH sigurinn!!!

 

Mætum öll!!!

 

Áfram FH!


Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH