Akureyri mætir í Krikann

10.2.2009 Heiðar Arnarson


      


N1 deildin, fimmtudagurinn 12. febrúar 2009, kl 19:30


Síðasta umferð N1 deildarinnar fer að rúlla af stað á fimmtudaginn kemur kl 19:30 þegar Akureyri kemur í heimsókn í Krikann. Akureyri er í 5. sæti sem stendur, þremur stigum á eftir FH og með sigri getum við skilið okkur töluvert frá norðanmönnum og enn nær sæti í úrslitakeppninni.

Gengi liðanna

Akureyri hefur dalað töluvert síðan FH mætti þeim síðast í Krikanum 13. nóvember sl. FH beið þá lægri hlut fyrir norðanmönnum 32-34 en síðan hefur Akureyri ekki unnið leik. Þeir töpuðu 5 leikjum í röð eftir 13. nóv en réttu svo örlítið úr kútnum gegn Frömmurum á fimmtudaginn var og gerðu jafntefli. Síðan FH lék gegn þeim í nóvember var vegferðin brösótt fram að áramótum. Liðið sigraði Víking en tapaði fyrir Akureyri, HK og Val. Liðið sigraði síðan Fram og Stjörnuna nokkuð sannfærandi eftir áramótin en töpuðu svo illa fyrir Haukum á fimmtudaginn var.


Akureyrarliðið

Jónatan Magnússon, Andri Snær og Árni Sigtryggs hafa verið máttarstólpar liðsins í vetur ásamt línumanninum Herði Sigþórssyni. Árni fór þó í aðgerð fyrir áramót og hefur ekki getað beitt sér sem skyldi og munar um hann. Goran Gusic er svo kominn aftur en hann styrkir liðið talsvert. Þeir eru svo með Hafþór í markinu sem hefur varið geysilega vel í vetur.

 

Undirbúningur

Liðið hefur mátt þola mikið mótlæti undanfarna daga þar sem meiðsli hafa sett strik í reikninginn í tveimur mikilvægum leikjum. Annars vegar stórt tap gegn Haukum í deild á fimmtudaginn var og síðan féll liðið úr Bikarnum í undanúrslitum fyrir Val á sunnudaginn var. Nú er að horfa fram á við, þessir leikir eru að baki og mikilvægt að fókusera á næstu verkefni sem er að styrkja stöðu liðsins enn frekar í topp 4.

 

Ástand

Ólafur Guðmunds fór í aðgerð á ökkla og heppnaðist vel. Ekki er ljóst hvenær hann kemst á gólfið aftur. Óljóst er með ástandið á Aroni og spurning með þátttöku hans í leiknum. Jón Helgi er enn slæmur í öxl og er á leið í speglun fljótlega. Ólafur Gústafsson er á batavegi og kemst vonandi á eitthvað ról á næstunni. Hjörtur er á annarri löpp og spurning hvað hann getur beitt sér. Svo eru meiðslakóngarnir Árni og Heiðar fjarri góðu gamni sem fyrr. Annars er þetta bara eintóm hamingja!

 

Staðan

Nr. Félag Leik U J T Mörk Nett Stig
1. Haukar 14 10 0 4 408:352 56 20
2. Valur 14 8 3 3 390:334 56 19
3. Fram 14 7 3 4 383:382 1 17
4. FH 14 7 2 5 417:413 4 16
5. Akureyri 14 6 1 7 355:379 -24 13
6. HK 14 5 3 6 369:382 -13 13
7. Stjarnan 14 3 3 8 344:376 -32 9
8. Víkingur 14 2 1 11 355:403 -48 5

Aðrir leikir

Fim. 12.feb.2009 19.30 Vodafone höllin Valur - Stjarnan

Fim. 12.feb.2009 19.30 Framhús Fram - HK

Stuðningur

FH liðið hefur fengið einstakan stuðning í síðustu tveimur leikjum. Bæði skiptin hafa FHingar fyllt þau íþróttahús sem leikið hafa verið í og haldið uppi gífurlega góðri stemmningu. Því miður hafa úrslitin ekki fallið okkar megin. Þessir frábæru áhangendur eru þó hvattir til að fjölmenna áfram á lokasprett Íslandsmótsins því enn eru miklir möguleikar og margt í spilunum. Með góðum leik og áframhaldandi baráttu og liðsheild er liðinu öllum vegir færir og þá er sæti í úrslitakeppni okkar.



Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?