Vís

8 liða úrslit í Eimskipsbikarnum - FH fer út á nes í kvöld

12.12.2011 Heiðar Arnarson
FH heimsækir Gróttumenn í kvöld í Eimskipsbikarnum en um er að ræða síðasta leik 8 liða úrslitanna. Ekki hefur blásið byrlega hjá Gróttumönnum í vetur en þeir verma botnsætið í N1 deildinni. Það gefa þó engin fyrirheit fyrir þennan leik, allt önnur keppni og allt getur gerst í Bikarnum eins og flestir vita. Auk þess hafa FHiingar aldrei átt auðveldan leik á nesinu. Nú er að duga eða drepast, mætum og styðjum liðið áfram í bikarnum klukkan 19:30. Við erum FH!

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?