Getraunastarf Fimleikafélags Hafnarfjarðar

30.12.2011 SR

Nú er komið að því. Við biðlum til FHinga nær og fjær um að hjálpa til með að gera getraunastarf FH það stærsta í Hafnarfirði, og þó víðar væri leitað. Það þarf ekki að tippa stórt, aðallega að vera með. Eins og staðan er núna þá er annað félag hérna í Hafnarfirði okkur framar þegar kemur að þessu, en það að sjálfsögðu gengur ekki.

Við verðum í Kaplakrika alla laugardaga milli kl. 11 og 13.

Einnig bjóðum við upp á að hægt verði að senda inn raðir með tölvupósti, svona fyrir þá sem ekki eiga heimangengt á laugardagsmorgnum. Fyrir þá sem það kjósa, bendum við á að hafa samband við Héðinn í síma 699 3000 eða á hedinn@kafarinn.is til að fá frekari upplýsingar. Að sjálfsögðu vonumst við samt eftir að sjá sem flesta í krikanum.


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?