Hafnarfjarðarsigur norðan Læks

9.12.2008 Heiðar Arnarson

29-28

Eimskipsbikarinn, Kaplakriki, sunnudagurinn 7. desember 2008, kl 15:30


FH.is hefur fengið sérstakan gestafréttaritara til þess að fjalla um leik FH og Hauka sl sunnudagi en það er enginn annar en... Guðmundur Pedersen okkar þaulreyndi hornamaður sem átti frábæran leik á sunnudaginn eins og allt FH liðið... Við sendum boltann á Gumma:

Er hægt að biðja um stærri og flottari leik í átta liða úrslitum í bikar en Hafnarfjarðarslag milli FH og Hauka? Ég held ekki, svei mér þá.  Við FH-ingar höfðum ástæðu til að mæta brattir til leiks eftir að hafa fyrir nokkrum vikum sigrað Hauka í N1 deildinni í Krikanum.  Ætlun okkar var að endurtaka leikinn, en við vissum líka vel að andstæðingar okkar ætluðu sér ekki að leyfa okkur það svo glatt.

Fyrri hálfleikur

Leikurinn byrjaði þokkalega hjá okkur, hart var tekist á og nokkuð um pústra.  En svo sem ekkert meira en gengur og gerist, sérstaklega ekki þegar þessi lið mætast.  Við leiddum stærstan hluta fyrri hálfleiksins en aldrei samt meira en 1-2 mörk.  Staðan í hálfleik 16-14, okkur í vil.


Seinni hálfleikur

Sá seinni byrjaði mjög vel hjá okkur og náðum við mest 6 marka forskoti, þessi kafli hjá okkur var frábær, allt small saman, hörku vörn, góð skyttu mörk, góð liðsheildarmörk og krafturinn í liðinu bara til fyrirmyndar.  Þegar ca 15 mínútur voru eftir fór Birkir að verja eins og berserkur í marki Hauka, og viðkannski að gera honum auðveldar fyrir með lakari skotum, en þeir náðu að minnka muninn í 1 mark og allt á suðupunkti.  Þeir fengu nokkur tækifæri til að jafna en ekkert var skorað síðustu 4 og hálfa mínútuna í leiknum.  Næst komust þeir því að jafna þegar Sigurbergur skaut í stöng, þaðan í hina og stöngina og út. Við fengum boltann og freistuðumst til þess að halda honum út leikinn, það tókst ekki, dæmd var leiktöf þegar ca 10 sekúndur voru eftir og Haukar bruna í hratt upphlaup, við reyndum að brjóta á þeim en náðum þeim ekki fyrr en Ási braut á Sigurbergi rétt við punktalínu, alls ekki svo gróft brot en sjálfsagt
brot sem að verðskuldaði rautt spjald.  Svona brot sjást oft, sérstaklega þegar lítið er eftir af leik og í sjálfu sér ekkert út á það að setja.  Þegar þetta gerðist ætlaði allt um koll að keyra, þetta fór fyrir brjóstið á Haukamönnum og einhverjir pústrar áttu sér stað á milli manna, ég held samt að þegar ró er komin yfir alla þá átta menn sig á því að þetta er nákvæmlega það sem allir hefðu gert í stöðunni, þ.e. að brjóta eins og Ási braut.  En leikurinn var ekki búinn, Haukar áttu aukakastið eftir sem fór yfir og einhverjir aukapústrar áttu sér stað í framhaldinu, eitthvað sem á ekki að sjást í svona íþrótt, en sem betur fer róuðust menn að lokum og við tók mikill fögnuður okkar, enda ekki alltof oft sem við höfum haft betur gegn Haukum á undanförnum árum, og ekki síst sú tilhugsun að við vorum búnir að tryggja okkur farseðilinn í undanúrslit í bikarnum.



Það var frábær liðsheild sem skilaði sigri í dag. Þegar Aron var klipptur út komu aðrir leikmenn til skjalanna og spiluðu glimrandi. Ási, Gummi og Óli tóku hvað eftir annað af skarið eftir góðan undirbúning og Siggi nýtti sín færi frábærlega og var eins og kóngur í ríki sínu í varnarleiknum. Aron átti síðan stórkostlegt mörk inn á milli þess sem hann var tekinn úr umferð. Varnarleikurinn var einnig frábær og Haukarnir áttu í stökustu vandræðum mestallan leikinn og virtist sem enginn nema Sigurbergur almennilega ráða almennilega við okkur.

Mörk FH:
Guðmundur Pedersen 7
Ólafur Guðmundsson 6
Ásbjörn Friðriksson 5
Aron Pálmarsson 5
Sigurður Ágústsson 4
Hjörtur Hinriksson 1
Jón Helgi Jónsson 1

Varin skot:
Magnús Sigmundsson 8
Daníel Andrésson 3

 
Stuðningur
 
Frábært var að sjá svona marga í Krikanum og stuðningur og umgjörð í kringum leikinn í alla staði frábær.

FH er því komið í undanúrslit ásamt Val og 1. deildarliðunum Gróttu og Selfossi. Það verður spennandi að fylgjast með bikardrætti HSÍ sem verður væntanlega á næstunni.

Áfram FH!!!





Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?