„Það verður seint afsannað að trúin flytji fjöll!“

7.12.2008 Heiðar Arnarson


Sigurður Ágústsson línumaður FH-inga er bjartsýnn fyrir leikinn í dag við Hauka enda engin ástæða til annars. Siggi, eins og hann er oftast kallaður, hefur leikið mjög vel í vetur jafnt í vörn sem sókn á sínu fyrsta tímabili í efstu deild. Eins og jafnaldrar sínir í FH-liðinu hefur Siggi þó leikið sinn skerf af stórleikjum, bæði með FH og yngri landsliðum. FH.is fékk að trufla Sigga í prófalestri en drengur sá stundar nám í Lærða Skólanum, Menntaskólanum í Reykjavík.

Jæja Siggi, stórleikur á sunnudaginn. Er ekki lag að taka Haukana aftur frammi fyrir troðfullum Krika og alþjóð?
„Ég held það. Væri náttúrlega frábært að fá að upplifa svipaða tilfinningu og síðast þegar við mættum Haukum, enda ekki skrýtið. Þetta er auðvitað bikar sem gerir þetta vonandi stærra og menn segja víst að allt geti gerst í bikarnum. Og jú, frammi fyrir alþjóð er auðvitað flott. Vonandi bara að reglulegar heimsóknir 3000 manna í Krikann verði staðreynd í vetur.“

Hver er lykillinn heldur þú til að sigra vel mannað Haukalið?
„Góð spurning sko. Númer eitt er það örugglega óbilandi trú á sigri, bæði við á skýrslunni og ekki síst áhorfendur, agi þar á eftir og ástríðan. Svo gleðin að sjálfsögðu, á vígvellinum og vonandi eftir stríðið, ef við trúum,“ sagði stríðsmaðurinn Siggi sem verður í vígahug í FH-búningnum í dag.
FH vann Víking í síðasta leik nokkuð örugglega en hafði tapað tveim leikjum í röð í deildinni þar á undan. Við spurðum Sigga hvort það væri ekki erfitt að gíra sig upp í svona stórleiki eftir tvö töp og áreynslulítinn sigur.
„Nei, alls ekki. Þessir leikir eru svona einum stalli ofar og auðvitað bikar þannig að síðustu leikir í deild skipta engu, en við unnum náttúrlega Víking í síðasta leik svo við höfum engar áhyggjur. Erum farnir að temja okkur Ný-Sjálenskar rugby upphitanir og fleira svo að við verðum alveg klárir.“

Þó svo að vel hafi gengið í vetur er Siggi með báða fætur á jörðinni þegar við spyrjum hvort hann sé ánægður með sína spilamennsku í vetur.
„Jájá, þetta hefur verið alveg ágætt. Maður á reyndar svo margt ólært í þessu ennþá. Tímabilið er bara hálfnað svo ég vil frekar bíða með spurninguna fram í maí-júní,“ sagði Siggi skynsemin uppmáluð.
Mikill getumunur er á liðum í N1-deildinni og þeirri fyrstu hvar FH spilaði í fyrra. Tvennt ólíkt er að spila í efstu deild en þeirri fyrstu segir Siggi aðspurður um muninn á deildunum.
„Úrvalsdeildin er auðvitað sterkari og hver einasti leikur upp á hvern blóðdropa. Í fyrra var markmiðið efsta sæti í fyrstu deild sem við vissum að var mjög raunhæft sem raun bar vitni. Núna erum við svona að finna okkar sess, erum nýir og ekki nýir og það er mjög lærdómsríkt. Við erum að fá mikið út úr þessum vetri en lærðum samt helling í fyrra, bara öðruvísi.“

„Okkur finnst bara gaman að fólk njóti þess sem við erum að gera og vilji fylgjast með okkur,“ sagði línumaðurinn knái aðspurður hvort fjölmiðlaumfjöllunin trufli ekki einbeitingu leikmanna viss í sinni sök um að engin truflun fælist í henni og bætti við: „ Það er bara gott að fá smá athygli í fjölmiðlum því við verðum að kunna að höndla hana. Hún mun ekkert minnka.“

Nú ert þú búinn að spila mikið undanfarin ár, bæði með FH og eins ungmennalandsliðum Íslands. Færðu aldrei leið á handbolta?
„Jújú, bara alveg eins og á flestu öðru. Það þýðir samt ekkert að vera hugsa út í það. Maður verður að vera á tánum í þessu hlaupi ef maður á ekki að missa úr gír. Þetta er úthaldsíþrótt á marga vegu.“
Eins og alþjóð veit hefur liðsfélagi Sigga, Aron Pálmarsson, fengið samningstilboð frá þýska stórliðinu Kiel og spurðum við því hvort Siggi myndi ekki senda Aron út með spólur af leikjum FH til að sýna Alfreð Gíslasyni þjálfara Kiel.
„Nei, það held ég ekki. Það eru enn einhver ár í að maður nái þeim klassa.“

En hvað vill Siggi segja að lokum við FH-inga?
„Það verður seint afsannað að trúin flytji fjöll!“

FH.is þakkar Sigga fyrir spjallið með óskum um sigur í dag og góðs gengis í prófunum.


Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH