Handboltagisk - 10. umferð karla

4.12.2008 Árni Stefán Guðjónsson

Sigurður Valur Sveinsson


10.umferð í N1-deild karla

Giskari umferðarinnar að þessu sinni er enginn annar en Sigurður Valur Sveinsson, fyrrum stórskytta á heimsmælikvarða og núverandi þjálfari Þróttar í handknattleik. Sigurður á að baki langan og farsælan feril í handbolta, m.a. með Þrótti, Val og Lemgo, þar sem hann afrekaði eitt tímabilið að verða markakóngur 1.deildarinnar. Auk þess spilaði hann lengi vel með íslenska landsliðinu og á að baki hátt í 250 landsleiki.

N1-deild karla og 1.deild karla


Fim. 4.des.2008 19.00 Ásvellir   Haukar - HK spá - 1

Fim. 4.des.2008 19.30 Kaplakriki   FH - Víkingur spá - 1

Fim. 4.des.2008 19.30 Framhús   Fram - Valur spá - 1


Fim. 4.des.2008 19.30 Mýrin     Stjarnan - Akureyri spá - 1



Fim. 4.des.2008 21.00  Ásvellir  Haukar U - ÍR spá- 2

Fös. 5.des.2008 19.30  Selfoss  Selfoss - Þróttur spá - 1

Fös. 5.des.2008 20.00   ÍM Grafarvogi  Fjölnir - Grótta spá - 2

Lau. 6.des.2008 14.00   Vestmannaeyjar  ÍBV - Afturelding spá - 2



Sigurður skorar síðan á Pál Ólafsson fyrir næstu umferð, en hann ættu nú flestir handboltaunnendur að þekkja, enda gamalreyndur í bransanum, lék m.a. lengi vel með Þrótti og íslenska landsliðinu en hefur undanfarin ár gert garðinn frægan hjá Haukum sem þjálfari og nú síðast sem yfirmaður handknattleiksmála.



Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH