Kaplakriki fimmtudagurinn 4. desember 2008 kl 19:30
FH – liðið mætir
aftur til leiks eftir landsleikjapásu á fimmtudag. Þá fær liðið Víking í
heimsókn í Kaplakrikann og hefst leikurinn kl 19:30.
Gengi liðanna
Víkingar og
FHingar komu upp úr 1. deildinni í vor. Hlutskipti liðanna hefur verið gjörólík í vetur.
Víkingar eru með ungt og efnilegt lið og hafa átt ágætis spretti í vetur. Það
hefur þó verið á brattan að sækja hjá liðinu og hafa þeir aðeins nælt sér í 1
stig og eru neðstir í deildinni, en þeir gerðu jafntefli við Stjörnuna þann 6. nóvember
sl. Víkingar eru því væntanlega afar hungraðir í sinn fyrsta sigur í deildinni
og því erfitt verkefni framundan hjá FH liðinu. FH hefur gengið vel í vetur en
örlítil niðursveifla hefur verið í síðustu tveimur leikjum með tapi fyrir HK og
Akureyri. FH liðið sigraði þar áður Hauka og Stjörnuna, gerðu jafntefli við
Fram og Val, töpuðu fyrir HK en sigruðu Akureyri þar á undan. FH hefur 10 stig
í 4. sæti.

Munu feðgarnir mætast á fimmtudag?
Víkingsliðið
Þó svo Víkingur eigi
enn eftir að sækja sigur í deildinni hefur liðið þó yfir góðum leikmönnum að
skipa. Helstu hetjur Víkinga í vetur hafa verið Sverrir Hermannsson, örvhent
skytta, Sveinn Þorgeirsson, rétthent skytta og Davíð Georgsson, miðjumaður. Hin
gamalreynda kempa Bjarka Sigurðsson hefur gengið til liðs við Víking og lék
gegn Val í síðasta leik. Það eru því einhverjar líkur á feðgaslag því sonur
Bjarka, Örn ingi Bjarkason leikur með FH liðinu.
Undirbúningur
FH liðið mátti
sætta sig við tap gegn sterku HK liði í síðasta leik þar sem slæmur kafli í
seinni hálfleik gerði útslagið. Drengirnir hafa hrist það af sér og hafa æft vel
í pásunni. Drengirnir eru staðráðnir í að snúa mótlæti síðustu leikja sér í vil
og leggja Víkinga á sínum heimavelli.
Ástand
Liðið hefur endurheimt Jón Helga Jónsson aftur úr meiðslum. Hjörtur
Hinriksson er enn að jafna sig á ökklameiðslum, Ólafur Gústafsson er að jafna
sig eftir hnéaðgerðir, Heiðar Örn Arnarson er að jafna sig eftir axlaraðgerð og
Árni Stefán Guðjónsson er enn slæmur í baki.
Staðan
| Nr. |
Félag |
Leik |
U |
J |
T |
Mörk |
Nett |
Stig |
| 1. |
Valur |
9 |
5 |
3 |
1 |
252:214 |
38 |
13 |
| 2. |
Akureyri |
9 |
6 |
0 |
3 |
247:247 |
0 |
12 |
| 3. |
HK |
9 |
4 |
2 |
3 |
239:245 |
-6 |
10 |
| 4. |
Fram |
8 |
4 |
2 |
2 |
225:219 |
6 |
10 |
| 5. |
FH |
9 |
4 |
2 |
3 |
268:265 |
3 |
10 |
| 6. |
Haukar |
8 |
4 |
0 |
4 |
230:210 |
20 |
8 |
| 7. |
Stjarnan |
8 |
1 |
2 |
5 |
198:217 |
-19 |
4 |
| 8. |
Víkingur |
8 |
0 |
1 |
7 |
207:249 |
-42 |
1 |
Aðrir leikir
| Fim. 4.des.2008 |
19.00 |
Ásvellir |
Haukar - HK |
|
|
| Fim. 4.des.2008 |
19.30 |
Framhús |
Fram - Valur |
|
|
| Fim. 4.des.2008 |
19.30 |
Mýrin |
Stjarnan - Akureyri |
Stuðningur
Það eru tvö stig í boði á fimmtudag og ekkert annað kemur til greina en að
hirða bæði. FH liðið þarf áfram þinn stuðning og um að gera að taka
fimmtudagskvöldið frá og sjá frábæran handbolta.
Mætum öll
Áfram FH!!

Ert þú ekki
örugglega búinn að skrá þig í Mugg??
Hvað fæ ég við að skrá mig í Mugg?
- Frítt
fyrir fjölskylduna inn á alla heimaleiki meistaraflokka karla og kvenna (ekki
þó á tekjuskipta leiki svo sem bikarleiki og oddaleiki í úrslitakeppni)
- Frítt
fyrir korthafa og maka á hið veglega Muggarahóf sem haldið er á hverjum
vetri og ýmsar aðrar uppákomur yfir veturinn.
- Nafn
skuldlausra korthafa lendir í potti einu sinni á ári sem úr er dregin
utanlandsferð
- Þetta
allt fyrir aðeins 1.400 krónur hvern mánuð.
Tökum þátt í
handboltaveislunni í Krikanum og styðjum strákana og stelpurnar!
Ég vil skrá mig í Mugg
Frekari upplýsingar um Mugg
Áfram FH!!
