Eins marks sigur á Gróttu!

15.11.2008 Meistaraflokkur kvenna
Stelpurnar tóku 2 góð stig í Krikanum í dag þegar þær tóku á móti liði Gróttu.  Fyrir leikinn voru liðin jöfn í 6.-7. sæti N1 deildarinnar.  Grótta vann eins marks sigur úti á Nesi þegar liðin mættust í fyrsta leik tímabilsins en í dag voru það FHstelpur sem tóku stigin tvö.

Lokatölur 27-26 og FH stelpur komnar í 5. sæti!

Frekari umfjöllun um leikinn er væntanleg á næstu dögum.

Kjósið mann leiksins á síðu Muggs, 123.is/muggur

Áfram FH!!


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?