
Kaplakriki, fimmtudagurinn 13. nóvember 2008, kl 19:30
FH missti
Akureyringa framúr sér á lokasprettinum í leik liðanna í Kaplakrika í gær og varð
að sætta sig við tap eftir kaflaskiptan leik. Lokatölur urðu 32-34 fyrir
Akureyri en staðan í hálfleik var 17-14 fyrir FH í hálfleik. Akureyri náði því
að hefna fyrir stórsigur FHinga í Bikarkeppninni frá síðasta sunnudegi.
Kjósið mann leiksins hér

Aron skoraði nánast þegar hann vildi í gær
Fyrri hálfleikur
FHingar byrjuðu
samt frábærlega í leiknum og komust í 5-0 eftir fjórar mínútur. Allt virtist
stefna í flugeldasýningu en Akureyringar eru seigir og komu vörn sinni í gang
þegar leið á fyrri hálfleikinn. FH hélt 3-4 marka forystu allan hálfleikinn og
lítið í spilunum sem sýndi að Akureyringar ætluðu að ógna FHingum eitthvað
verulega. FHingar voru þó ekkert að spila neinn sérstakan varnarleik en fyrir
aftan vörnina var Magnús Sigmunds að verja frábærlega og tók u.þ.b. 12-13 bolta
í hálfleiknum. Í sókninni gat Aron skorað þegar honum sýndist með mörkum í
öllum regnbogans litum. Frábær skemmtun að horfa á drenginn og eins og ekkert
hafi verið sjálfsagðara lyfti hann sér upp fyrir framan varnartröll Akureyringa
hvað eftir annað og skoraði. Ási og Gummi voru síðan mjög drjúgir og skoruðu
góð mörk. Staðan var 17-14 okkar mönnum í vil í hálfleik en einhvernveginn
hafði maður á tilfinningunni að með eðlilegum varnarleik hefðu norðanmenn átt
að vera 3-4 mörkum meira á eftir okkur.

Örn Ingi Bjarkason nýr leikmaður FH liðsins
Seinni
hálfleikur
Akureyringar komu
grimmir til leiks í seinni hálfleik og náðu að minnka muninn niður í eitt mark,
18-17 eftir ca fimm mínútna leik. FHingar gáfu þá í, fóru í 22-19 og 25-21
þegar um korter var eftir. Þá fór að síga á ógæfuhliðina. Varnarleikurinn fór
að ganga verr, grunnvarnarvinna eins að klára maður á móti manni gekk ekki sem
skyldi og þar af leiðandi brutust norðanmenn auðveldlega í gegn eða náðu góðum
stimplunum sem leiddu til upplagðra færa einir á móti markverði. Þeir breyttu
stöðunni í úr 27-24 í 27-28 og höfðu frumkvæðið til leiksloka. Þegar þrjár
mínútur voru og staðan 31-31 rifu þeir sig frá FH liðinu og skoruðu þrjú mörk í
röð, 31-34 og kláruðu leikinn. Leikurinn endaði svo 32-34.

Óli Guðmunds með neglu
Niðurstaðan
Niðurstaðan er auðvitað vonbrigði fyrir okkur FHinga miðað við gang
leiksins framan af. Þetta var í raun frekar skrítinn leikur. Menn virtust afar
mótiveraðir í byrun leiks og maður bjóst alveg eins við bókuðum sigri eftir
frábæra byrjun. Akureyringar voru aftur á móti ólseigir, stemmningslið og
gáfust aldrei upp. Mótiveringin virtist dala eftir því sem leið á hjá okkar
mönnum og um leið og Aron var tekinn úr umferð seint í seinni hálfleik virtust
leikmenn fara örlítið að titra og óöryggi gætti innan liðsins. Því fór sem fór.
Bestir hjá FH liðinu voru Aron og Maggi, Ásbjörn átti frábæra kafla, Óli
Guðmunds átti inn á milli mjög góðan leik og vert er að nefna frábæra
frammistöðu Halldórs Guðjónssonar í sókn en Dóri er að stíga sín fyrstu skref í
liðinu. Dóri setti fjögur mörk úr fjórum
skotum bæði úr venjulegu spili og úr hraðaupphlaupum.
Það þýðir þó lítið að gráta þennan leik mikið. 2 sigrar af þremur er ágætis
árangur gegn Akureyri. Fullt af flottum hlutum hjá FHliðinu í leiknum og
sérstaklega má hrósa fyrir þessa frábæru byrjun, góðri spilamennsku á köflum og
flottum mörkum. Hins vegar þurfum við að bregðast betur við því þegar Aron er
tekinn út úr spilinu og undir öðrum leikmönnum komið að halda uppi
sóknarleiknum. En að sjálfsögðu lærum við af okkar mistökum sem helst komu upp
á lokakaflanum og lögum þessa dán punkta sem komu upp í leiknum. Byggjum á
okkar góða leik sem verið hefur og komum tvíefldir til næsta leiks sem verður í
Digranesinu í Kópavogi gegn HK. Við erum FH og við gefumst aldrei upp!!
Markaskorarar FH
(mörk/skot(víti)):
Aron Pálmarsson 11/15
Ásbjörn Friðriksson 5/8
Ólafur Guðmundsson 5/12
Halldór Guðjónsson 4/4
Guðmundur Pedersen 4/6
Sigursteinn Arndal 2/2
Sigurður Ágústsson 1/2
Varin skot (varin/skot(víti)):
Magnús Sigmundsson
25/57
Mörk Akureyrar (mörk/skot):
Árni Þór Sigtryggsson 11/19
Hörður Fannar Sigþórsson 5/5
Andri Snær Stefánsson 5/9
Jónatan Magnússon 4/11
Oddur Grétarsson 3/6
Anton Rúnarsson 3/9
Gústaf Kristjánsson 1/1
Varin skot
Hörður Flóki Ólafsson 8
Hafþór Einarsson 4
Staðan
| Nr. |
Félag |
Leik |
U |
J |
T |
Mörk |
Nett |
Stig |
| 1. |
Akureyri |
8 |
6 |
0 |
2 |
225:213 |
12 |
12 |
| 2. |
Valur |
8 |
4 |
3 |
1 |
224:192 |
32 |
11 |
| 3. |
FH |
8 |
4 |
2 |
2 |
240:233 |
7 |
10 |
| 4. |
Fram |
7 |
3 |
2 |
2 |
196:192 |
4 |
8 |
| 5. |
HK |
8 |
3 |
2 |
3 |
207:217 |
-10 |
8 |
| 6. |
Haukar |
7 |
3 |
0 |
4 |
196:188 |
8 |
6 |
| 7. |
Stjarnan |
6 |
1 |
2 |
3 |
149:160 |
-11 |
4 |
| 8. |
Víkingur |
8 |
0 |
1 |
7 |
207:249 |
-42 |
1 |
Aðrir leikir og úrslit
Stuðningur
Frábær mæting var í Krikann
í gær eins og hefur verið í haust og á köflum var liðið mjög vel hvatt áfram.
Það er þó alltaf hægt að gera betur. Í slíkum stórleikjum er stuðningur
áhorfenda gríðarlega mikilvægur þessu unga liði og það á sannarlega skilið alla
þá hvatningu sem í boði er. Höldum áfram að mæta á völlinn góðir FHingar og
hvetjum liðið enn betur í komandi leikjum. Mætum öll og fyllum Digranesið á
fimmtudaginn!
FH hjartað slær...
Áfram FH !!
