Toppslagur - FH-Akureyri
11.11.2008
Heiðar Arnarson


FH - Akureyri
Kaplakriki, fimmtudagurinn
13. nóvember 2008, kl 19:30
Topplið N1 deildar karla eigast við á fimmtudagskvöldið 13. nóvember kl
19:30, en þetta eru auðvitað við FHingar og Akureyri. Liðin hafa spilað mjög
vel í deildinni þrátt fyrir spá manna um annað. Liðin eigast nú við með
nokkurra daga millibili því FH lagði Akureyri af velli í 16 liða úrslitum
Eimskipsbikarsins á sunnudaginn var.
Gengi liðanna
Akureyri hefur komið mjög á óvart í deildinni í haust og er í öðru sæti á
eftir okkur FHingum. Akureyri tapaði fyrir Hafnarfjarðarliðunum í fyrstu
tveimur leikjum en hefur síðan unnið 5 leiki í röð í deildinni með frábærri
spilamennsku og ekta norðanmannaseiglu og stemmningu. FH hefur ekki síður komið
fólki á óvart og flestir ekki búist við að FH og Akureyri yrðu efst eftir 1. umferð
deildarinnar. FH hefur sigrað Hauka, Akureyri, Víkinga og Stjörnumenn, gerðu
jafntefli við Val og Fram og tapaði einum leik gegn HK. Þetta gerir 10 stig á
lið. FH vann síðan Akureyringa eftir kaflaskiptan leik í Bikarnum á sunnudaginn
var. Stórviðburður í aðsigi.
Akureyrarliðið
Akureyri hefur spilað betur en menn þorðu að vona miðað við þá krísu sem
liðið lent í sl. sumar þegar fjöldi leikmanna yfirgaf liðið, en með grettistaki
náðu menn að standa saman á Akureyri og liðinu hefur gengið frábærlega eftir
erfiða byrjun. Andri Snær Stefánsson hefur verið frábær í liði Akureyrar í
haust og skorað mikið í leikjum. Jónatan Magnússon hefur einnig verið góður sem
og Árni Sigtryggson. Hafþór markvörður hefur síðan verið frábær milli
stanganna. Rúnar þjálfari hefur loks náð að skapa einingu útúr brotum KA og
Þórs og miðað við spilamennsku í síðustu leikjum er Akureyri til alls líklegt í
vetur.
Undirbúningur
Um tvo baráttuleiki er að ræða við Akureyri með stuttu millibili.
Akureyringar sem hafa verið á siglingu í deildinni eru varla hrifnir af því að
tapa tvisvar fyrir FHingum í röð svo að leikurinn á fimmtudag verður allt annar
og erfiðari en á sunnudag. Drengirnir gera sér grein fyrir þessu og nú er mál að
halda einbeitingu frá byrjun og framkalla þetta sigurhugarfar áfram sem
einkennt hefur liðið í haust.
Ástand
Sjúkralistinn er sá sami og áður. Hjörtur er að finna bót meina sinna, og
þeir Óli Gúst, Árni Stefán og Heiðar allir utan vallar. Liðið er annars í
hörkustandi og menn engan veginn búnir að fá nóg af stórleikjum.
Staðan
| Nr. |
Félag |
Leik |
U |
J |
T |
Mörk |
Nett |
Stig |
| 1. |
FH |
7 |
4 |
2 |
1 |
208:199 |
9 |
10 |
| 2. |
Akureyri |
7 |
5 |
0 |
2 |
191:181 |
10 |
10 |
| 3. |
Valur |
7 |
3 |
3 |
1 |
193:170 |
23 |
9 |
| 4. |
Fram |
6 |
3 |
1 |
2 |
167:163 |
4 |
7 |
| 5. |
HK |
7 |
3 |
1 |
3 |
178:188 |
-10 |
7 |
| 6. |
Haukar |
7 |
3 |
0 |
4 |
196:188 |
8 |
6 |
| 7. |
Stjarnan |
6 |
1 |
2 |
3 |
149:160 |
-11 |
4 |
| 8. |
Víkingur |
7 |
0 |
1 |
6 |
185:218 |
-33 |
1 |
Aðrir leikir
| Fim. 13.nóv.2008 |
19.30 |
Framhús |
Fram - HK |
|
|
| Fim. 13.nóv.2008 |
19.30 |
Vodafone höllin |
Valur - Víkingur |
|
|
| Mán. 17.nóv.2008 |
19.30 |
Mýrin |
Stjarnan - Fram |
Stuðningur
Fyrsta sætið er í húfi. FH fer í hvern leik til þess að sigra og engin
ástæða til þess að fara að tapa fyrir Akureyri núna. Við hvetjum ykkur kæru
FHingar að fjölmenna og mynda áfram frábæra stemmningu í Krikanum. FH liðið er
á þeim stað sem þeim ber að vera og þurfa stuðning okkar til að svo megi verða.
Takið fimmtudaginn frá og mætum öll með FH hjartað.
Muggur
Ert þú orðinn Muggari? Skráðu þig í Mugg, stuðningsmannafélag Handknattleiksdeildar
FH á www.123.is/muggur og fáðu árskort fyrir
þig og þína fjölskyldu á heimaleiki FH í karla og kvennaflokki. Með þessu
styðurðu einnig handknattleiksdeildina.
Tökum þátt í handboltaveislunni í Krikanum og styðjum strákana og
stelpurnar!
Áfram FH!!!
