Baráttan um Fjörðinn - Þjálfararnir

8.11.2008 Heiðar Arnarson

Dagurinn er runninn upp. Leikur FH og Hauka- baráttan um Fjörðinn í kvennaflokki er leikinn í dag kl 16:00 í Kaplakrika. FH.is hefur síðastliðna eina og hálfa viku fjallað ítarlega um karla- og kvennaleikina en á þessum tíma hefur Hafnarfjarðarbær verið á öðrum endanum. Í dag verður síðasta innslag fyrir leikinn þegar þjálfarar kvennaliðanna, Guðmundur Karlsson, þjálfari FH, og Díana Guðjónsdóttir, þjálfari Hauka, setjast niður með fréttamanni FH.is:


Guðmundur Karlsson

 

Hafnarfjarðarslagur hlýtur alltaf að vera spennandi í boltanum, eigum við ekki von á hörkuleik þetta árið?

 

Jú það er alltaf svolítið sérstök tilfinning að spila þessa leiki og þó að Hauka-liðið sé mjög vel mannað af íslenskum leikmönnum og erlendum leikmönnum þá verður þetta engu að síður hörkuleikur. Bilið á milli liðanna fer minnkandi og því góðar líkur á spennuleik.

 

Hvernig finnst þér mótið hafa farið af stað, leikir, umgjörð og slíkt?

 

Mótið er stórskemmtilegt, mikið um jafna leiki og umgjörð öll til fyrirmyndar. Það eru sóknarfæri og ef ég horfi á það sem stendur mér næst, þ.e. FH þá er verið að vinna gríðarlega góða vinnu allt í kring og mikill viðsnúningur innan vallar sem utan.

 

Eitthvað sem hefur komið þér á óvart eða er þetta allt eftir bókinni?

 

Þetta er svona nokkuð eins og maður bjóst við en ég hefði nú samt tippað á að Valur yrði á toppnum enda með hörkumannskap. Það eru 3 lið sem eru sterkust, Stjarnan, Valur og Haukar en baráttan um fjórða sætið er kannski opnari en maður hélt.

 

Ertu sáttur við leik þíns liðs til þessa? Hvað þarf að bæta?

 

Heildarsvipur liðsins er miklu mun betri og allt skipulag að koma til. Góðir leikkaflar hafa lengst og vinnu-eðli hópsins er mjög gott og það er ég ánægður með. Það eru margir hlutir sem þarf að bæta en það er þó helst varnarleikur og hraðaupphlaup.

 

Spá um úrslit?

24:23

 

 

Díana Guðjónsdóttir

 

Hvernig líst þér á Hafnarfjarðarslaginn, eigum við von á hörkuleik?

 

Já ég á ekki von á öðru. Það er alltaf einhver önnur stemming þegar þessi lið mætast.

 

Hvernig finnst þér mótið hafa farið af stað, leikir, umgjörð og slíkt?

 

Mjög vel en auðvitað mættu vera fleirri áhorfendur. En ég get ekki kvartað, stuðningsmenn Hauka hafa verið duglegir að láta sjá sig og hópurinn er alltaf að stækka. Stuðningurinn gerði t.d. gæfumunin á móti Val í síðasta leik. Umgjörðin hefur verið mjög fín á leikjunum sem mitt lið hefur spilað.

 

Eitthvað sem hefur komið þér á óvart eða er þetta allt eftir bókinni?

 

Þetta hefur verið svona nokkuð eftir bókinni. Það sem kemur mér kannski á óvart er hvað einstaka, ungir leikmenn, sem voru mjög sterkir á síðustu leiktíð, hafa sést lítið nú í vetur.

 

Ertu sátt við þitt lið það sem af er móti?

 

Ég er nokkuð sátt við mitt lið það sem af er. Auðvitað er alltaf eitthvað sem hægt er að laga og við munum vinna í því í vetur.

 

Spá um úrslit?

 

Við munum skora fleiri mörk en þær í þessum leik því við ætlum okkur sigur.

 

FH.is þakkar þessum frábæru þjálfurum fyrir spjallið og megi betra liðið sigra í dag!!!

Áfram FH!!


Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH