Eimskipsbikarinn - FH-Akureyri

7.11.2008 Heiðar Arnarson

     

FH - Akureyri

Kaplakriki, sunnudagurinn 9. Nóvember 2008, kl 17:00

Á sunnudaginn leikum við FHingar í 16 liða úrslitum Eimskipsbikar karla gegn Akureyri. Þetta verður enn einn stórleikurinn í Krikanum því karlalið FH sigraði baráttuna um Hafnarfjörð á miðvikudaginn og á morgun eigast topplið N1 deildarinnar.

Gengi liðanna

Akureyri vann stórsigur á Handknattleiksfélagi Reykjanesbæjar HKR í 32 liða úrslitum bikarsins og FHingar lögðu Víkinga 2 einnig með miklum mun. Um var að ræða viðureignir við tvö b-lið og því fyrirstaðan lítil. Akureyri hefur komið mjög á óvart í deildinni í haust og er í öðru sæti á eftir okkur FHingum. Akureyri tapaði fyrir Hafnarfjarðarliðunum í fyrstu tveimur leikjum en hefur síðan unnið 5 leiki í röð í deildinni með frábærri spilamennsku og ekta norðanmannaseiglu. FH hefur ekki síður komið fólki á óvart og flestir ekki búist við að FH og Akureyri yrðu efst eftir 1. Umferð deildarinnar. FH hefur sigrað Hauka, Akureyri, Víkinga og Stjörnumenn, gerðu jafntefli við Val og Fram og tapaði einum leik gegn HK. Þetta gerir 10 stig á lið. Það er því um algjöran toppslag að ræða á sunnudag.


Andri Snær Stefánsson hefur verið góður í haust

Akureyrarliðið

Akureyri hefur eins og áður sagði spilað betur en menn þorðu að vona miðað við þá krísu sem liðið lent í sl. sumar þegar fjöldi leikmanna yfirgaf liðið, en með grettistaki náðu menn að standa saman og liðinu hefur gengið frábærlega eftir erfiða byrjun. Andri Snær Stefánsson hefur verið frábær í liði Akureyrar í haust og skorað mikið í leikjum. Jónatan Magnússon hefur einnig verið góður sem og Árni Sigtryggson. Rúnar þjálfari hefur loks náð að skapa einingu útúr brotum KA og Þórs og miðað við spilamennsku í síðustu leikjum er Akureyri til alls líklegt í vetur.

Nonni lék vel gegn Haukum

Undirbúningur

FH hefur náð sér niður á jörðina eftir afar frækinn sigur á liði Hauka á miðvikudagskvöld. FH liðið er á rjúkandi siglingu rétt eins og Akureyrarliðið og því er um að ræða mjög athyglisverðan leik og án efa verður hart barist á sunnudag. Bikarinn er að veði!

Ástand

Sjúkralistinn er sá sami og áður. Hjörtur er að finna bót meina sinna, er spilfær, og þeir Óli Gúst, Árni Stefán og Heiðar allir utan vallar. Liðið er annars í hörkustandi og menn engan veginn búnir að fá nóg af stórleikjum.

Stuðningur

Það sýndi sig í vikunni að FH hefur á að skipa einhverja fjölmennustu og dyggustu áhangendur á Íslandi. Leikurinn gegn Haukum var einstakur. Hann fer í sögubækurnar og ljóst að ekki hafa komið fleiri áhorfendur á handboltaleik síðan í kringum 1992. Stuðningsmenn með Mafíuna í fararbroddi fleyttu liðinu yfir hjallann og urðu til þess að FH endurheimti Fjörðinn. FH.is hvetur þessa frábæru áhorfendur sem mættu á miðvikudag að gera sér glaðan dag á sunnudaginn kl 17 og láta sjá sig í Krikanum. Nú er ekki aftur snúið góðir FHingar.

Næsta takmark eru 8 liða úrslitin!

Áfram FH!!!

 



Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?