FH eiga Fjörðinn - Umfjöllun

6.11.2008 Heiðar Arnarson


29-28

Kaplakriki, miðvikudagurinn 5. nóvember 2008, kl 19:30


Stórkostlegum leik FH og Hauka lauk í gær með sigri FH 29-28 fyrir troðfullum Kaplakrika þar sem hið unga lið FH fór á kostum í seinni hálfleik eftir erfiðan fyrri hálfleik. Liðið vann mikið afrek með því að sigra sjálfa Íslandsmeistarana sem fóru sumir ekki leynt með yfirlýsingar fyrir leikinn.


Fögnuður fyrir framan fullan Krikann, yndislegt... (fleiri myndir á leiðinni)

Þrátt fyrir að áhangendur FH hafi verið dyggir í gegnum tíðina og áhorfendafjöldi yfirleitt verið fyrir ofan meðalláhorfendafjölda á handboltaleikjum á Íslandi síðustu árin verður að segjast að greinarhöfundur hafi engan veginn búist við þeirri aðsókn sem var á leiknum í gær. Þegar um hálftími var í leik var fólk byrjað að streyma inn í Krikann af það miklum krafti að miðasöludrengjunum var vorkunn. Þegar leikurinn hófst var troðfullt beggja megin og stemmningin var rafmögnuð. Dúettinn Jói og Krissi tóku nýju FH lögin fyrir áhorfendur og kveiktu vel í mannskapnum. Skömmu fyrir leik voru ljós Krikans slökkt og ljósashow og kastarar notaðir við kynningu leikmanna FH og þeir hylltir einum af öðrum. Ekki amalegt að láta 1500 FHinga öskra nafn sitt fagna sér um leið og maður hleypur inn í ljónagryfjuna. Stórkostleg umgjörð af hálfu okkar FHinga!

Fyrri hálfleikur

FHingar byrjuðu ekkert sérstaklega í leiknum. Lagt var upp með 4-2 vörn sem gekk út á að mæta aggressíft út í Sigurberg vinstra megin og Andra Stefan á miðjunni. Það herbragð virkaði ekki sem skyldi því það myndaðist mikið pláss og Haukarnir nýttu sér það vel einna helst með því að losa vel um Kára Kristjánsson sem var mjög erfiður við að eiga í fyrri hálfleik. Að því leyti gekk vörnin tiltölulega illa og fljótlega í hálfleiknum skipti liðið í 6-0 vörn sem gekk betur, þrátt fyrir að Sigurbergur Sveinsson hafi gengið frekar lausum hala í kjölfarið. Sóknin var einnig í töluverðum vandræðum og við áttum erfiðara með að finna netmöskvana heldur en Haukar. Ljósið í myrkrinu var þó Aron Pálmarsson sem var frábær og gerði gæfumuninn hvað varðar að FH liðið missti Haukana ekki of langt frá sér. Haukar fóru t.a.m. í 2-5 forystu, 5-8, 7-12 og staðan í hálfleik var síðan 13-17 Haukum í vil.

Seinni hálfleikur

Elvar þjálfari hefur eitthvað fiktað við fínstillingar leikmanna, eins og honum einum er lagið(tekið fram spari-frasann). Liðið náði ótrúlegum viðsnúningi, ekki ósvipuðum og í Garðabæ um daginn og í stöðunni 16-20 Haukum í vil skoruðu FHingar 6 mörk í röð og komust yfir 22-20. Á þessum tímapunkti  fór Aron Pálmarsson hamförum í sókn sem vörn, Guðmundur Pedersen hrökk í gang og Magnús Sigmundsson vaknaði upp af vondum draumi og fór að verja eins og berserkur. Vörnin var líka að berjast frábærlega og í miðjustöðunni í vörninni voru þeir Steini, Óli, Aron og Siggi að spila frábærlega. Upp frá þessu var leikurinn í járnum og þakið var að rifna af Krikanum. Þvílíkur leikur!! Þvílík stemmning!! Þvílíkar tilfinningar!!

Lokaspretturinn: FH hafði þó frumkvæðið og náðu yfirhöndinni inni á milli þess sem Haukar jöfnuðu. En þegar fáar mínútur lifðu leiks ná Haukar að komast yfir 27-28. FHingar ná að jafna 28-28, Maggi ver ótímabært skot Andra Stefan og Aron Pálmars skorar þegar 50 sekúndur eru eftir, 29-28 og allt verður vitlaust!!! Haukar fara í sókn, misnota hana, FH kemst í hraðaupphlaup, Hjörtur missir boltann, Haukar senda hann fram á Andra Stefan sem er kominn einn í gegn. Skorar en dómarar leiksins sem voru búnir að vera æði misjafnir í leiknum dæma réttilega skref. Hvað sem hver segir hefur undirritaður skoðað atvikið nokkrum sinnum og Andri tekur einfaldlega of mörg skref. Í raun frábær og hugaður dómur. FH heldur í sókn en Gummi á slæma sendingu á Hjört, Haukar ná boltanum en FH nær að stöðva sóknina þegar 5 sekúndur eru eftir.  Aron þjálfari Hauka tekur leikhlé. Haukar taka fríkast og Gunnar Berg sem á engra kosta völ en að senda í hornið vegna frábærs varnarleiks, sendir beint í lúkurnar á Aroni Pálmars og þar með var það komið!!! Sigurinn var okkar og allt gjörsamlega gekk af göflunum í Krikanum. Algjör tilfinningasprengja braust út, FHliðið dansaði villtan trylltan stríðsdans og áhorfendur gjörsamlega töpuðu sér.

Niðurstaðan

Þvílík stemmning, þvílík upplifun, þvílíkur íþróttaviðburður!!! Það sem þessi lið buðu upp á, umgjörð leiksins, fjöldi áhorfenda, eftirvæntingin sem magnaðist upp í bænum... þetta fer í sögubækurnar og þessi viðburður er gífurlegur sigur fyrir íslensku deildarkeppnina og íslenskan handbolta.FHliðið var stórkostlegt í gær. Það höndlaði þá pressu að vera mest undir 5 mörkum í leiknum og náðu að jafna og komast yfir með 6 marka sveiflu í byrjun seinni hálfleiks og það fyrir fullu húsi Kaplakrikans. Við náðum að vinna okkur úr þeirri stöðu að vera undir 27-28 þegar lítið var eftir, í að sigra 29-28. Þvílíkur karakter í þessu unga liði FH þar sem 70% leikmanna eru 20 ára og yngri!!

Liðið sem heild var auðvitað frábært. Aron Pálmarsson var einstakur í þessum leik, ekki síður í varnarleik sem sóknarleik, Magnús Sigmundsson kom með frábæra innkomu í seinni hálfleik eftir erfiða byrjun og gerði gæfumuninn undir lokin í tvígang. Gummi var traustur á vítapunktinum og átt mjög góðan leik. Jón Helgi Jónsson átti frábæra innkomu í seinni hálfleik og átti fjölda stoðsendinga og spilaði félaga sína vel uppi ásamt því að setja 2 mörk af mikilli seiglu. Það má svo geta þess að þetta var fyrsti leikur Örn Inga Bjarkasonar sem gekk til liðs við FH fyrir stuttu. Örn Ingi átti ágætis innkomu í fyrri hálfleik og mun á næstu misserum komast enn betur inn í leik liðsins. Ekki leiðinlegt að spila upphafsleik sinn með FH liðinu á þennan máta.

Það sem gerir þennan sigur hvað sætastan, að undanskildu öllu sem nefnt var hér fyrir ofan er framganga sumra Haukamanna í fjölmiðlum fyrir leikinn sem einkenndust af miklum hroka og ætluð til minnkunar FH liðsins. Setningar á borð við „FH er áfram litla liðið í Hafnarfirði en eru ekki þetta ör lið sem þeir voru” og FH er litla systir Hauka, og við ætlum ekki tapa fyrir þeim” voru látin flakka. Ekki má gleyma kommentum á þessa leið FH liðið eru bara hópur 13 ára krakka og eru engin fyrirstaða fyrir okkur Haukamenn”. Nokkrir fullyrtu síðan að sigur Hauka yrði a.m.k. 10-13 mörk, s.s. FH liðið engin fyrirstaða.

Þessi sálfræðivopn snérust við í höndunum á Haukum því orð Haukamanna gáfu FHingum meiri byr í seglin, urðu ekkert nema frekari hvatning og gáfu þeim meiri vilja til þess að fara með sigur af hólmi... hvað sem það kostaði. FH hjartað pumpaði enn hraðar, og það og stuðningur áhorfenda fleytti liðinu alla leið.

Greinahöfundur telur líka að grátur Hauka vegna ofangreinds skrefdóms á Andra sé fyrst og fremst undirliggjandi svekkelsi vegna úrslita leiksins og vegna vanhugsaðra ummæla nokkurra þeirra fyrir leik sem síðan stakk þá í bakið. Dómararnir voru mjög misjafnir og það var nokkrum sinnum í leiknum sem vafasamir dómar líta dagsins ljós en í þetta skipti var dómurinn réttur. Greinarhöfundur telur að þegar menn rói sig niður og skoði atvikið sjái menn ljósið.

 

Markaskorarar FH (mörk/skot(víti)):

Aron Pálmarsson 10/16

Guðmundur Pedersson 6/7 (3)

Hjörtur Hinriksson 3/5

Ólafur Guðmundsson 3/11

Sigurður Ágústsson 2/2

Sigursteinn Arndal 2/3

Jón Helgi Jónsson 2/5

Ásbjörn Friðriksson 1/3

Örn Ingi Bjarkason 0/1

 

Varin skot (varin/skot(víti)):

Sigurbergur Sveinsson 9/16(3)

 Andri Stefan 6 (11)

 Einar Örn Jónsson 4/7(2)

Kári Kristján Kristjánsson 3 (5)

Gísli Jón Þórisson 2/3

Gunnar Berg Viktorsson 2/4

Pétur Pálsson 1/1

Freyr Brynjarsson 1/5

 

N1 deild karla

 

Nr. Félag Leik U J T Mörk Nett Stig
1. FH 7 4 2 1 208:199 9 10
2. Akureyri 7 5 0 2 191:181 10 10
3. Valur 6 3 2 1 171:148 23 8
4. Fram 6 3 1 2 167:163 4 7
5. HK 6 3 0 3 156:166 -10 6
6. Haukar 7 3 0 4 196:188 8 6
7. Stjarnan 6 1 2 3 149:160 -11 4
8. Víkingur 7 0 1 6 185:218 -33 1

 

Aðrir leikir og úrslit

Mið. 5.nóv.2008 19.30 Kaplakriki FH - Haukar 29-28 (13-17)
Fim. 6.nóv.2008 19.30 Framhús Fram - Akureyri 28-33 (13-16)
Fim. 6.nóv.2008 19.30 Víkin Víkingur - Stjarnan 29-29
Lau. 8.nóv.2008 16.00 Digranes HK - Valur


Stuðningur

Það er varla hægt að lýsa stemmningunni sem myndaðist í Krikanum. Ekki dreymdi skipuleggjendum leiksins, sem þó fóru út í gífurlega umfangsmikla kynningarstarfsemi, um að Krikinn myndi fyllast og í raun ekki rýma alla þá stórkostlegu áhorfendur sem mættu. Þegar  Jóhann Skagfjörð, frábær kynnir kvöldsins kallaði í kallkerfið og bað fólk um að þjappa sér saman - “Krikinn er að fyllast og fólk er enn að streyma inn” … fór gæsahúð um leikmenn. Krikinn var einfaldlega ekki nóg stór fyrir þennan viðburð í gær! Hver hefði trúað því.  Mafían var mætt og var stórkostleg. Hún gerði gæfumuninn í seinni hálfleik þegar allt ætlaði um koll að keyra.

Engin orð fá þessu lýst og leikmenn, skipuleggjendur og aðstandendur félagsins eru hrærðir og þakklátir fyrir þennan gríðarlega stuðning. Við vonum að við fáum að njóta hans áfram í komandi leikjum.

Kjósið mann leiksins hér

Áfram FH!!!


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?