Baráttan um Fjörðinn - Fyrirliðarnir

5.11.2008 Heiðar Arnarson



Nú fer stóreinvígi karla að skella á og fh.is tekur nú lokainnslag sitt fyrir karlaleikinn sem hefst kl 19:30. Við fengum í settið fyrirliða hvors liðs, þá Hjört Hinriksson og Arnar Pétursson og fengum þá til að diskútera leikinn örstutt.



Hjörtur Hinriksson, fyrirliði FH

 

Það hlýtur að vera gaman að fá aftur alvöru Hafnarfjarðarslag eftir fjarveru okkar frá deild þeirra bestu?

Engin spurning. Það er ekki hægt að hugsa sér skemmtilegri leiki til að spila, hvað þá horfa á.

 

Þú hlýtur að vera ánægður með framgöngu FH-inga það sem af er móti? Erum við kannski að fara að sjá liðið gera atlögu að úrslita-keppninni í vor?


Okkur hefur gengið vel það sem af er móti en við höldum báðum fótum fast á jörðinni og fókusum bara á einn leik í einu. Sjáum til hvað það kemur okkur langt.

 

Hvernig finnst þér mótið hafa farið af stað almennt séð, leikir, umgjörð og slíkt?


Ég held að menn geti bara verið nokkuð sáttir með það sem deildin hefur uppá á bjóða. Allir að vinna alla. Spennandi leikir og umgjörðin að stórbatna. Við FHingar megum allavegana mjög vel við una hvað umgjörð og áhorfendur varðar.

 

Hvernig hefur þér gengið persónulega? Nú hefur þú verið meiddur í haust…


Já þessi meiðsli hafa vissulega sett strik í reikninginn hjá mér og fyrir vikið er hlutverk mitt með liðinu á öðrum nótum en ella. En á meðan ég hef einhverju hlutverki að gegna mun ég leggja allt undir til að hjálpa liðinu í stríðinu sem nú geysar. Það held ég nú.

 

Haukarnir virka ógnarsterkir ef mið er tekið af frammistöðu þeirra í Evrópukeppninni. Eigum við einhverja möguleika gegn þeim og hvað þurfum við til að ná góðum úrslitum?


Ég held að menn deili ekki um það að Haukarnir eru best mannaða liðið á landinu í dag, og þó víðar væri leitað. En við höfum óbilandi trú á sjálfum okkur og ætlum okkur ekkert annað en sigur á morgun. Til að svo megi verða þurfum við að ná algjörum toppleik þar sem menn eru að leggja sig 150% fram fyrir hvern annan. Við höfum rosalega sterka ástríðu fyrir því sem við erum að gera og það eitt og sér getur fleytt okkur langt.

 

Nú hefur áhorfendafjöldi stóraukist í Krikanum á fyrstu heimaleikjum og umgjörðin stór-batnað. Þið hljótið að vera ánægðir með það?


Já við erum það svo sannarlega. Ég er ekki frá því að það sé að myndast einhverskonar ástarsamband milli leikmanna og áhorfenda. Við vitum ekkert betra en að geta glatt okkar fólk í pöllunum. Aftur er það ástríðan fyrir félaginu og öllu okkar frábæra fólki. Án áhorfenda væri þetta einfaldlega ekki hægt.

 

Hvernig fer leikurinn?

 

FH 29 – Haukar 27



 



Arnar Pétursson, fyrirliði Hauka

 

Hvernig líst þér á að fá aftur alvöru Hafnarfjarðarslag eftir fjarveru FH-inga úr efstu deild?

 

Mjög vel, alvöru lið, alvöru leikmenn, alvöru stuðninsmenn og alvöru stemming, við getum ekki beðið um meira !

 

Nú hafa FH-ingar farið vel af stað í mótinu, kannski betur en margir áttu von á. Hefur það komið þér á óvart?

 

Já og nei. Ég var nú búinn að segja það einhverstaðar að FH liðið myndi koma á óvart. Fullt  góðum ungum strákum sem þekkja ekkert annað en að vinna í bland við gamalmenni sem vilja ljúka sínum ferli, hjá sínu félagi með sóma. En ég verð samt að viðurkenna að ég átti kannski ekki von á þessari byrjun.

 

Heldur þú að við fáum að sjá alvöru FH-Hauka leik eins og oft var „i den”?

 

Já ég á von á mun jafnari leik í dag en undanfarin ár. Eigum við ekki að segja að þessi leikur marki upphafið að nýju “I den” tímabili þar sem leikir liðanna voru viðburður í Hafnarfirði.

 

Er Evrópukeppnin mögulega að trufla leik Hauka liðsins í deildinni hér heima?

 

Já ég get ekki neitað því að hún tekur orku og truflar einbeitingu þegar leikið er þétt. En hún truflar ekki í kvöld.

 

Hvernig hefur þér gengið persónulega? Nú hefur þú verið meiddur í haust…

 

Ég hef nú nánast sloppið við meiðsli það sem af er tímabili. Datt í smá pakka eftir seinasta leik en er að verða góður. Annars hef ég átt ágætis daga inn á vellinum í bland við hörmulega, eins og liðið í heild sinni. En við erum búnir að brenna okkur of oft á sama soðinu og búnir að læra af því .

 

Hvað finnst þér um handboltann almennt? Hvernig finnst þér veturinn hafa farið af stað?

 

Mótið hefur farið vel af stað. Vel mætt og mikil stemming. Mótið nær svo nýjum hæðum í kvöld og helst þar allt til enda. 

 

Hvernig fer leikurinn?

 

Við vinnum þennan leik nokkuð örugglega,  erfitt að spá fyrir um tölur en það fer allt eftir því hvort Aron ætlar að halda áfram að æfa fyrir Evrópukeppnina og spila þ.a.l  5+1 vörn eða detta niður í gömlu góðu 6+0 vörnina J

Að lokum hvetur fh.is Hafnfirðinga til að fjölmenna á leikinn í kvöld. Fyllum Krikann gott fólk!!!


Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH