Baráttan um Fjörðinn 2008 - Þjálfararnir
4.11.2008
Heiðar Arnarson
Nú
styttist í leikdag og spennan er í algleymingi í Hafnarfjarðarbæ. FH.is heldur
áfram að fjalla um leikina og nýlega náðum við tali af þjálfurum
karlaliðanna, þeim Elvari Erlingssyni, þjálfara FH, og Aroni Kristjánssyni,
þjálfara Hauka. Þetta höfðu kapparnir að segja um þennan stórslag:
Elvar Erlingsson
Það hlýtur að vera gaman að fá aftur
alvöru Hafnarfjarðarslag eftir fjarveru okkar frá deild þeirra bestu?
Já klárlega, þessi leikur ætti að
trekkja að og hafa hátt skemmtanagildi. Við í FH bíðum spenntir eftir þessum
leik og munum selja okkur dýrt á móti Hauk-unum, sem eru firnasterkir.
Þú hlýtur að vera ánægður með
framgöngu FH-inga það sem af er móti? Erum við kannski að fara að sjá liðið
gera atlögu að úrslita-keppninni í vor?
Já það er ekki annað hægt en að vera
mjög ánægður með gengi liðsins, en það er ekki nema þriðjungur búinn af
deildarkeppninni og við höldum því enn fast við okkar markmið, sem er að halda
okkur í deildinni.
Hvernig finnst þér mótið hafa farið
af stað almennt séð, leikir, umgjörð og slíkt?
Mótið hefur farið vel af stað, liðin
hafa lagt metnað í umgjörð leikja og leikir hafa verið jafnir og fjörugir,
margir ungir leikmenn eru að stíga á stokk og hafa staðið sig vel. Deildin
virðist einnig vera nokkuð jöfn og virðast flest lið geta unnið hvort annað.
Haukarnir virka ógnarsterkir ef mið
er tekið af frammistöðu þeirra í Evrópukeppninni. Eigum við einhverja möguleika
gegn þeim og hvað þurfum við til að ná góðum úrslitum?
Haukarnir eru mjög vel mannaðir og
reynslumiklir, enda Íslandsmeistarar og hafa staðið sig frábærlega í
Meistaradeildinni. Við fyrstu skoðun ættu möguleikar okkar á sigri að vera
sáralitlir, en aftur á móti ef við náum upp samheldni og óþrjótandi baráttu
gætu óvæntir hlutir gerst.
Nú hefur áhorfendafjöldi stóraukist
í Krikanum á fyrstu heimaleikjum og umgjörðin stór-batnað. Þið hljótið að vera
ánægðir með það?
Já við erum þakklátir okkar
stuðningsfólki. Á meðan við stöndum okkur vel þá söfnum við í húsið og stjórnin
hefur gert góða hluti varðandi umgjörðina.
Spá um úrslit?
Nei, en við munum klárlega gera tilkall til stiganna tveggja.

Aron Kristjánsson
Hvernig líst þér á að fá aftur
alvöru Hafnarfjarðarslag eftir fjarveru FH-inga úr efstu deild?
Það er virkilega gaman að því að
FH-liðið sé aftur komið í efstu deild og leikir liðanna munu vonandi krydda
tilveruna hjá Hafnfirðingum í vetur.
Nú hafa FH-ingar farið vel af stað í
mótinu, kannski betur en margir áttu von á. Hefur það komið þér á óvart?
FH-liðið er mjög spennandi lið. Hafa
marga mjög efnilega leikmenn innan sinna raða og svo nokkra reynslubolta eins
og vin minn hann Magnús Sigmundson. Ég verð að segja það að leikir FH á móti
Val og Fram komu mér töluvert á óvart og fannst mér mikill klaufaskapur hjá
FH-liðinu að vinna ekki báða þessa leiki. Þeir voru með frumkvæðið mest allan
tímann í báðum leikjum en reynsluleysið varð þeim væntanlega að falli.
Heldur þú að við fáum að sjá alvöru
FH-Hauka leik eins og oft var „i den”?
Það væri nú skemmtilegt! Þetta voru
skemmtilegustu leikirnir að spila. Miðað við það hvernig liðin hafa farið af
stað í deildinni þá tel ég að það verði skemmtilegir leikir milli þessara liða
í vetur.
Staðan á þínu liði, er Evrópukeppnin
mögulega að trufla leik liðsins í deildinni hér heima?
Já, það er nú bara þannig að þegar
lið leika í Meistaradeildinni þá virðist það alltaf trufla þau í deildinni hér
heima. Allir leikmenn liðsins eru annaðhvort í fullri vinnu eða námi og margir
með fjölskyldur. Þannig að það er mikið álag á leikmönnunum þegar þeir þurfa að
sinna þessu öllu saman og leikið er á 3-4 daga fresti. Stóru leikirnir verða
óhjákvæmilega leikirnir í Meistaradeildinni og þá er einbeitingin í toppi. Við
erum hinsvegar að vinna í því að bæta einbeitinguna fyrir deildarleikina.
Handboltinn almennt. Hvernig finnst
þér veturinn hafa farið af stað?
Ágætlega. Það hefur verið betri
mæting á leiki í vetur hjá flestum félögum og umgjörðin hefur bæst mikið hjá
þeim flestum. Við tókum að vissu leyti af skarið í fyrra og brydduðum upp á
nýjungum hvað varðar umgjörð á handboltaleikjum á Íslandi og fyrir
styrktaraðila og velunnara. Það er því fagnaðarefni að fleiri félög hafa tekið
sig á og gert svipaða hluti. Það eru einnig þó nokkrir mjög efnilegir leikmenn
á leiðinni sem verður fróðlegt að fylgjast með næstu árin.
Spá um úrslit í leiknum?
Við vinnum 30-25.
Við þökkum þessum herramönnum gott spjall. Megi betri aðilinn vinna!
