N1 deild kvenna: Stjarnan - FH

31.10.2008 Meistaraflokkur kvenna


VS

Mýrin Garðabæ, laugardagurinn 1. nóvember, kl. 13:00


Sjötta umferð N1 deildar kvenna fer fram á morgun, laugardag, og taka Íslands- og Bikarmeistarar Stjörnunnar á móti okkar stelpum í Mýrinni.  Lið Stjörnunnar hefur ekki tapað leik á árinu og ætla okkar stelpur að gera ALLT sem þær geta til að ná að breyta þeirri þróun!

 

Gengi liðanna

Okkar stelpur hafa staðið sig ágætlega það sem af er og er með 4 stig eftir 5 umferðir.  Sigrar unnust í 2. og 3. umferð á móti HK og Fylki en liðið hefur tapað gegn Gróttu, Val og síðasta laugardag gegn Fram.  Þá lék liðið án þriggja lykilleikmanna, þeirra Gunnar, Hafdísar Ingu og Ragnhildar Rósu, en í þeirra stað komu þær Birna Berg og Heiðdís Rún og stóðu þær sig mjög vel í sínum fyrsta meistaraflokksleik.  Hópurinn er nokkuð breyttur frá síðasta leik en reynsluboltarnir hafa snúið aftur, Ebba Særún er veik  og Birna Berg einbeitir sér að landsliðsverkefni í fótboltanum.

Stjarnan er eins og áður segir ósigruð á árinu og er því efst í N1 deildinni með 10 stig.  Eitt síðasta liðið til að sigra Stjörnuna var einmitt FH en sá leikur fór fram í desember í fyrra.

 

Stjörnuliðið

Stjarnan hefur gríðarlega sterka einstaklinga í sínum hópi.  Með liðinu leika þrír sterkir atvinnumenn, Alina Petrache, Birgit Engl og Florentina Stanciu,  og að auki er liðið með þrjá núverandi landsliðsmenn, þrjá fyrrverandi landsliðsmenn og fjölmargar stelpur í yngri landsliðunum.  Hópurinn er aðeins breyttur frá síðasta ári en fyrirliði liðsins, Rakel Dögg Bragadóttir, hélt í haust til Danmerkur í atvinnumennsku, Anna Bryndís Blöndal og Ásta Björk Agnarsdóttir snéru sér að barneignum og Helga Vala Jónsdóttir gekk til liðs við Fimleikafélagið.  Þá gekk landsliðslínumaðurinn hún Anna Úrsúla Guðmundsdóttir til liðs við félagið frá Gróttu.  Nýverið var skipt um þjálfara hjá Garðabæjarliðinu og tók Atli Hilmarsson við góðu búi Ragnars Hermannssonar.

 

Undirbúningur

Æfingarnar síðustu vikuna hafa gengið mjög vel og það er góð stemming í hópnum.  Ekkert annað en sigur kemur til greina á morgun og ætla stelpurnar að berjast til síðustu sekúndu!!

 

Hópurinn:

Markverðir

Helga Vala Jónsdóttir

Sigríður Arnfjörð Ólafsdóttir

Aðrir leikmenn

Ingibjörg Pálmadóttir

Líney Rut Guðmundsdóttir

Birna Íris Helgadóttir

Gunnur Sveinsdóttir

Heiðdís Rún Guðmundsdóttir

Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir

Hafdís Inga Hinriksdóttir

Hildur Þorgeirsdóttir

Arnheiður Guðmundsdóttir

Hafdís Guðjónsdóttir

Guðrún Helga Tryggvadóttir

Sigrún Gilsdóttir

 

Stuðningur

FH stelpurnar þurfa á öllum ykkar stuðningi að halda og vonast til að FH-ingar fjölmenni í Mýrina kl. 13 á morgun, laugardag. Stelpurnar eru til alls líklegar og þú, kæri lesandi, gætir verið sá sem gerir gæfu muninn eftir leik. Liðið er breytt frá því í fyrra, veturinn er í okkar höndum. Það er bara spurning, ætlar þú að taka þátt í þessu ævintýri með okkur í vetur og skila báðum liðum FH á toppinn?

 

Áfram FH!!



Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?