N1 deild kvenna: Fram - FH

24.10.2008 Meistaraflokkur kvenna


VS

Framhúsinu í Safamýri, laugardaginn 25. október 2008 kl. 13:00

Næsta laugardag, 25. október kl. 13:00, mætir kvennalið FH Framstúlkum í Safamýrinni. Lið Fram er sterkt og vel mannað og því má gera ráð fyrir hörkuleik. Við hvetjum FH-inga til að mæta í Framhúsið og styðja við stelpurnar og koma svo við í Garðabænum á leiðinni heim til að hvetja FH strákana til sigurs gegn liði Stjörnunnar.

Gengi liðanna

Fram hefur ekki staðist þær væntingar sem gerðar voru til liðsins fyrir mótið.  Þær hafa sterka og reynda leikmenn í öllum stöðum en virðast ekki hafa náð upp sama hraða bolta og þær spiluðu í fyrra.  Þær koma því án efa brjálaðar til leiks á laugardaginn.

FH stelpunum var spáð 7. sæti í deildinni en eru sem stendur í því 4.  Liðið var óheppið að ná ekki í stig í fyrsta leik vetrarins gegn Gróttu en sá leikur tapaðist með minnsta mun.  Í næsta leik mættu FH stúlkur liði HK í Krikanum og unnu þær hann með einu marki.  Því næst lögðu þær Fylki nokkuð örugglega en í síðasta leik töpuðu þær fyrir liði Vals með 4 mörkum í miklum markaleik.  Þrátt fyrir stíganda í leikjum liðsins það sem af er vetri á liðið mikið inni og vonandi ná stelpurnar upp sínum besta leik á laugardaginn þótt liðið leiki án nokkurra reynslubolta.

Lið Fram

Fram var spútnik lið síðasta tímabils og lauk keppni í 2. sæti N1 deildarinnar með jafnmörg stig og Íslandsmeistarar Stjörnunnar en töpuðu á innbyrðis viðureignum.  Með liðinu leika 6 A-landsliðskonur og að auki eru þar tveir erlendir leikmenn, þ.á.m. Gabriela markvörður sem lék með FH í fyrra.  Framstúlkur hafa ekki fundið taktinn í haust og eru sem stendur í 6. sæti með 2 stig eftir 4 leiki en þeim var spáð 4. sæti í spá fyrirliða og þjálfara fyrir tímabilið.  Kjarni liðsins hefur spilað lengi saman og með sama þjálfarateymið og þekkja þær því vel inn á hverja aðra. 

Ástand

Ástand er heldur slæmt þessa dagna.  Gunnur Sveinsdóttir verður að öllum líkindum ekki með á morgun en hún hefur lítið getað æft í vikunni vegna meiðsla í baki.  Þá hefur Hafdís Inga Hinriksdóttir verið veik og síðast en ekki síst er fyrirliði liðsins, Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir, í leikbanni.  Hún fékk rautt spjald í leiknum gegn Val fyrir umdeilt brot og fékk eins leiks bann.

 

Staðan í deildinni

Nr. Félag Leik U J T Mörk Nett Stig
1. Stjarnan 5 5 0 0 137:106 31 10
2. Valur 4 3 0 1 110:92 18 6
3. Haukar 4 3 0 1 121:110 11 6
4. FH 4 2 0 2 105:104 1 4
5. HK 5 2 0 3 129:133 -4 4
6. Fram 4 1 0 3 90:96 -6 2
7. Grótta 4 1 0 3 94:113 -19 2
8. Fylkir 4 0 0 4 88:120 -32 0


Áfram FH!


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?