"Mamma styður, pabbi brjálaður!"

16.10.2008 Heiðar Arnarson

Sæll Andri Berg. Hvernig líkar þér vistin hjá Fram og hvernig hefur þér og liðinu gengið í byrjun móts?

·        Já sælir. Mér hefur liðið mjög vel hjá Fram og allt verið til fyrirmyndar þar. Liðinu og mér hefur gengið ágætlega það sem af er móts.

Hvert er  ykkar markmið í vetur?

·        Fara í hvern leik til að vinna og bæta okkur leik frá leik. Ef það tekst þá munum við verða Íslandsmeistarar.




Nú ert þú uppalinn FHingur og hefur leikið með félaginu við góðan orðstír. Hvernig líst þér á liðið og félagið í dag?

·        FH liðið í dag er það efnilegasta sem sést hefur lengi og margir strákar sem geta náð langt. En það er langur vegur frá því að vera efnilegur og verða góður. En efniviðurinn er svo sannarlega til staðar. Varðandi félagið þá líst mér mjög vel á það og þá umgjörð sem verið er að skapa.

Er von á kappanum aftur heim?

·        Það er aldrei að vita.

Hvað segir mamma við þessu? (Móðir Andra er Margrét Theodórsdóttir handboltakempa úr FH)

·        Hún styður mig í þessu en pabbi er alveg brjálaður yfir þessu. Hann segist ætla að halda með FH í dag.

Hvert er þitt persónulega markmið í handboltanum?

·        Það er náttúrulega alltaf draumurinn að komast í landsliðið og spila úti í almennilegri deild. En annars bara hafa gaman af þessu og standa sig vel.

Hvernig líst þér á leikinn á morgun?

·        Mjög vel. Þetta verður skemmtilegur leikur tveggja góðra liða sem spila skemmtilegan og hraðan handbolta. Hefði verið gaman ef Hjörtur hefði verið með en hann þurfti víst að berja einhvern í síðasta leik.

Er Kaplakriki ekki mun betri heimavöllur en Safamýri?

·        Heima er best hverju sinni.

Hver sigrar á morgun?

·        Fram, 26-30

Áfram...?

             ·  Ísland


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?