Víkingur – FH Umfjöllun

3.10.2008 Heiðar Arnarson


  27-29 

Víkin, fimmtudagurinn 2. ágúst 2008, kl 19:30


FH fór virkilega góða ferð í Víkina í gærkvöldi og sigraði Víkinga 27-29 eftir að hafa verið 13-16 yfir í hálfleik. FH liðið leiddi allan leikinn og hafði þetta í hendi sér nánast allan tímann þrátt fyrir góðan endasprett Víkinga.

Fyrri hálfleikur

Leikurinn byrjaði afar rólega. Sóknarlotur voru ekki upp á marga fiska hjá báðum liðum og fyrsta mark leiksins kom ekki fyrr en á fimmtu mínútu þegar Víkingar skoruðu úr víti. FHingar náðu þó strax yfir höndinni og leiddu með 2-3 mörkum. Víkingar jöfnuðu þó í 7-7 en í stöðunni 9-9 slitu FHingar sig frá og komust í 9-12 og voru svo yfir 13-16 í hálfleik. Víkingar áttu í stökustu vandræðum með Aron Pálmarsson, Ásbjörn Friðriksson og Sigurð Ágústsson í sókn FH  og voru mistækir í sínum sóknarleik. Við FHingar hefðum þó getað gert betur í varnarleiknum, menn voru e.t.v. ekki nægilega þéttir og heldur langt á milli manna sem gerði það að verkum að þeir náðu ekki að hjálpa næsta manni nægilega vel.

Seinni hálfleikur

FH hélt uppteknum hætti í seinni hálfleik. Þeir héldu Víkingum ávallt í 3-5 marka fjarlægð en náðu ekki að hrista þá af sér fyrr en um 10 mínútur voru eftir af leiknum þegar FH komst í 21-28. Um þetta leyti kom ákveðin værukærð í FH liðið og Víkingar settu í fimmta gírinn. FH skoraði aðeins eitt mark á síðustu átta mínútum leiksins gegn fimm mörkum víkinga og leikurinn varð allt í einu spennandi þegar um þrjár mínútur voru eftir í stöðunni 26-29. FH kláraði þó dæmið og sigraði með tveggja marka. Úrslitin gefa þó ekki rétta mynd af gangi leiksins.

Niðurstaðan

Niðurstaðan var virkilega góð. FH nældi sér þarna í 2 stig og því komið með 4 stig af 6 mögulegum sem er mjög fínn árangur. Liðið er búið að uppskera vel í leikjunum þremur og hugarfar og liðsheild verið til fyrirmyndar. Liðið hefði vissulega getað sigrað leikinn mun meira afgerandi í gærkvöldi en menn gerðu það sem þurfti  og  tvö stig eru tvö stig. Ef skoðuð er frammistaða einstakra leikmanna ber að nefna góða frammistöðu Ásbjörns Friðrikssonar, Sigurðar Ágústssonar og Arons Pálmarssonar sem áttu fínan leik í gær.

Markaskorarar FH (mörk/skot):

Aron Pálmarsson 7

Ásbjörn Friðriksson 6

Sigurður Ágústsson 6

Guðmundur Pedersen 5

Hjörtur Hinriksson 3

Guðni Már Kristinsson 1

Jón Helgi Jónsson 1

Ólafur Guðmundsson 1.

Varðir boltar (varin/skot(víti)):

Magnús Sigmundsson 11/39(2)

Daníel Andrésson 0/1


Markaskorarar fyrir Víking voru:

Sveinn Þorgeirsson 5

Sverrir Hermannsson 5

Davíð Georgsson 4

Hreiðar Haraldsson 3

Davíð Ágústsson 3

Brynjar Loftsson 2

Þröstur Þráinsson 2

Pálmar Sigurjónsson 1

Sigurður Örn Karlsson 1

Óttar Filipp Pétursson 1. 

Björn Viðar Björnsson varði 12 skot.

 

Staðan

Nr. Félag Leik U J T Mörk Nett Stig
1. Valur 3 2 1 0 87:74 13 5
2. HK 3 2 0 1 84:83 1 4
3. Fram 3 2 0 1 84:82 2 4
4. Haukar 3 2 0 1 88:74 14 4
5. FH 3 2 0 1 93:89 4 4
6. Akureyri 3 1 0 2 76:87 -11 2
7. Stjarnan 3 0 1 2 64:74 -10 1
8. Víkingur 3 0 0 3 86:99 -13 0

 Aðrir leikir og næstu leikir í deildinni

Mið. 1.okt.2008 19.30 Digranes HK - Haukar 25-23 (11-11)

Fim. 2.okt.2008 19.30 Víkin Víkingur - FH 27-29 (13-16)
Fim. 2.okt.2008 19.30 Vodafone höllin Valur - Fram 29-21 (16-9)
Fim. 2.okt.2008 19.30 Höllin Akureyri Akureyri - Stjarnan 22-19 (9-7)

Fim. 9.okt.2008 19.30 Höllin Akureyri Akureyri - HK


Lau. 11.okt.2008 16.00 Kaplakriki FH - Valur

 

Stuðningur

FH-stuðningsfólk fylkti liði og voru mun fleiri í Víkinni en stuðningsmenn heimamanna. Það var frábært að fá fólkið með okkur og styðja við bakið á okkur. Næsti leikur er bikarleikur gegn Víkingi 2 og því leggjum við FHingar leið okkar að nýju niður í Vík á þriðjudaginn kemur. Við vonumst því til að sjá alla aftur niður í Vík í næstu viku.

Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH